

Fyrirtækið Quirky er að koma með nýja útgáfu af sólarknúnu hleðslutæki sem er nokkuð sniðug. Tækið getur hlaðið helstu farsíma en nýjungin við tækið er sogskálin sem er sambyggð. Hægt er að smella tækinu á rúðuna í bílnum eða flugvélinni og halda hleðslunni. Einnig fylgir með venjulegur standur fyrir borð. Quirky ætlar að byrja að framleiða græjuna þegar 2000 pantanir eru komnar inn og þegar þetta er skrifað standa þær í rúmlega 500. Verð $39.99 ![]() Bíómyndir í boði allt flugið! Í tilefni af 125 ára afmæli bílsins kynnti Mercedes-Benz til sögunnar framtíðarbílinn F125. Bíllinn er óvanalegur blendingur en hann er knúinn af vetni og rafmagni og kemst 1000 km á hverri hleðslu.
Smelltu á Lesa meira til að fræðast um hvernig þú ert tengdur við Facebook þegar þú keyrir bílinn… ![]() Nýji kíkirinn Sony hefur tilkynnt að nýr sjónauki komi í búðir í nóvember. Þessi er með HD videoupptöku og 7,1mp myndavél. Verður verður nærri $2000 sem verður líklega einhver hálf milljón hingaðkomið. Allavega verður auðveldara að fylgjast með ![]() sjáiði mig! Sumum pöbbum finnst ekkert sérstaklega kúl að láta sjá sig með eldgamlan barnavagn með teinafelgum. Auðvitað er gaman að fara út með litla sólargeislann sinn og nú verður það enn skemmtilegra þegar alvöru græja er komin á heimilið. Porsche framleiðir ekki bara bíla heldur einnig hin ýmsu tæki eins og sólgleraugu og uppþvottabursta. Allt í hágæðahönnun og gæðum. Nú er sem sagt að koma á markaðinn frá þeim týpan P4911 barnavagn sem er gerður úr koltrefjum, áli, leðri og rúllar um á kúlulegum í hjólunum. Auðvitað smellpassar svo allt í skottið á 911. Kvikmyndavélin í iPhone 4 er glettilega góð. Nú er komin á markaðinn “The Steadicam Smoothee” sem er sérstaklega hönnuð stöðugleikagræja fyrir iPhone 4. Notast er við sömu tækni og í stórum myndavélum atvinnumanna en hún gerir þér kleift að taka upp myndbönd af hlutum á hreyfingu án þess að mikill hristingur verði í upptökunni. Hægt er að hlaupa með tækið útum allar trissur, upp og niður stiga eða bara hvert sem er og er myndatakan alltaf stöðug. Þegar hlutirnar róast niður er hægt að nota tækið sem þrífót á borði. ![]() Vertu stöðugur DVD diskur með leiðbeiningum fylgir. Kaupið hér á Amazon fyrir $180: Steadicam Smoothee for iPhone 4
| ||
66 fyrirspurnir. 0.894 sekúndur. | ||
Síðustu komment