Einn svalasti mótorhjólakappi síðustu aldar var Steve McQueen. Hann var reyndar frægur sem kvikmyndaleikari en keppti í motocrossi og enduro þrátt fyrir að samningur hans við kvikmyndaverið bannaði það (hann skráði sig í keppnir undir dulnefni).
McQueen notaði TAG Hauer Monaco úr þegar hann lék í kvikmyndinni Le Mans og hefur það úr verið klassískt síðan. Nú hefur TAG Hauer ákveðið að reyna að ná inn nokkrum aurum í viðbót á fornri frægð og framleitt hjálm sem líkist þeim sem McQueen notaði í sömu mynd.
Hjálmurinn er í trefjagleri með stálfestingum og er málaður í sömu litum og McQueen var með í myndinni auk þess sem Heuer logoið frá þeim tíma er málað á hjáminn. Hjálmurinn kostar $650 í USA sem er sirka 80 þús.

Sportlegur







Síðustu komment