Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

4 dyra Porsche

Wendelin Wiedeking tilkynnti á dögunum að þeir hjá Porsche væri byrjaðir að prófa nýjan 4 dyra coupe í þessari viku. Bíllinn hefur verið kallaður Panamera og er líklegur til að vera kynntur formlega til sögunnar á bílasýningunni í Genf árið 2009.

P2

Eitthvað verður fengið að láni úr hönnuninn á 911 bílunum en samt eru veigamiklar breytingar þar á. Vélin er frammí. Reiknað er með 3 tegundum af vélum í upphafi. 300 hestafla 6 strokka vél frá Volswagen (3,5 L) og svo 2 átta strokka vélar úr Cayenne bílnum, þ.e. 350 hestafla og svo turobo vélin sem er 560 hestöfl.

Stóra spurningin er sú hvort Porsche nái aftur að þagga niður í efasemdaröddum sem þegar hafa hljómað. Þeir náðu því með Cayenne jeppann, en tilhugsunin um 4 dyra fjölskyldubíl frá Stuttgart er ekki alveg búin að ná hljómgrunni hjá manni…

Lesa meira af 4 dyra Porsche

Nýjar vindmyllur staðsettar á úthafinu

Vindmyllur á hafi

Sjónmengun af vindmyllun kann að heyra sögunni til. Paul Sclavounos frá MIT skólanum hefur komið upp með lausn á vandamálinu. Vindmyllunum verður komið fyrir utan við sjóndeildarhring þannig að enginn sjái þær nema mávar og sjómenn. Vindmyllurnar verða einfaldlega festar með akkeri við sjávarbotn á allt að 650 metra dýpi. Þvermálið á vængjunum er 90 metrar og ættu afköstin að tvöfaldast því sjaldan er logn á úthafinu.

Blaðsíða 50 af 50« Fyrsta...102030...4647484950