Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Fullt af nýjungum á CES sýningunni í Las Vegas

Buffalo kynnti nýja árgerð af LinkTheater línunni sinni í dag. LinkTheater Wirelss A&G Media Player PC-P4LWAG. Þetta er sem sagt tæki sem þú hefur við sjónvarpið þitt til að sýna í því myndir sem geymdar eru í tölvunni þinni eða á hörðum disk (svipað og iTV frá Apple). Hægt er að tengjast við það þráðlaust yfir 802.11a/g, ethernet og USB 2.0.
S-video, D4 og fleiri útgangar eru svo í græjunni. Stýrikerfið er Mediabolic og styður það spilun á MP3, WMA, AAC hljóðskrám og MPEG 1/2/4, WMV 7/8/9, XviD og h.264 myndskrár.

linkt

Fleira til að trufla þig við aksturinn

Bandaríski bílaframleiðandinn Ford hefur tilkynnt að Blue&Me kerfið (áður frá Fiat) verði í boði í 12 tegundum af 2008 árgerðunum í haust undir nafninu “Ford Sync”. Í kerfinu er hægt að tengjast við farsíma í gegnum Bluetooth og við Mp3 spilara í gegnum A2DP / AVRCP og USB2.0 tengi. Þó svo búnaðurinn sé framleiddur af Microsoft þá er tengi fyrir iPod. Svo er auðvitað tengi fyrir Zune, en hver á svoleiðis?
Raddskynjari er í kerfinu og hægt verður að skipta á milli laga, hljómplatna og listamanna með raddskipunum. Einnig er hægt að hringja í fólk með því að segja nafn þeirra eftir að hafa ýtt á takkann “Push to Talk”. Eitt það frumlegasta er þó að tækið les fyrir þig SMS skilaboð og segja Ford menn að það skilja SMS tungumál eins og LOL og :)
USB tengi verður á tækinu til að hlaða inn gögn og til að hlaða iPod spilara og fleiri tæki

fordsync

Tekið af media.ford.com

Duracell víkkar vöruúrvalið

Batterísframleiðandinn Duracell er kominn með skemmtilega nýjung á markaðinn. Þetta er tæki sem er smellt aftaná iPod og er í senn aukabatterí og FM-sendir. Batteríið rúmlega tvöfaldar spilunartímann og FM sendirinn er með óendanlega mörgum stöðvum. Ekki þarf að taka tækið af iPodinum ef maður ætlar að tengja einhverja aðra aukahluti við hann.

Græjan er nú þegar til fyrir iPod Nano og fæst í vor fyrir iPod Video.

ipod batterí

Ný tegund harðra diska gefur ný tækifæri

Tölvuframleiðendur hafa beðið eftir stökkbreytingum á tækninni svo þeir geti farið að hugsa útfyrir boxið. Nú hafa tveir risar tilkynnt nýja tegund af hörðum diskum sem setja ný viðmið. Samsung kynnti þennan Solid State Disk (SSD) í fyrradag en hann er 16Gb.

ssd16

SanDisk sem eru stærstir í heiminum í minniskortum toppuðu þessa tilkynningu í gær. Þeir kynntu 32Gb SSD sem er alvöru tæki. Tækið er 4.5 cm á breidd og er stöðugur leshraði 62Mb á sekúndu en flettihraðinn er 7000 in/út á sekúndu sem er um 100 sinnum meira en flestir harðir diskar. Fyrir utan þetta er hann algerlega hljóðlaus. Stærsta skrefið er verðið sem er gefið upp $600 sem er helmingurinn af því sem áður hefur þekkst.

Þess vegna mega menn fara að búast við verulega þunnum, léttum, hljóðlátum fartölvum þar sem batteríið dugar miklu lengur. Einnig má búast við mjög öflugum farsímum og allskonar blöndu á milli síma og tölva.

ssd32

1 Tb harður diskur

Hitachi hefur brotið 1 Tb múrinn með því að kynna nýjan disk sem þeir kalla Deskstar 7K1000. Diskurinn er fullur af tækninýjungum en eina málið skiptir að hægt er að geyma fullt af klámi löglegum gögnum á honum. Diskurinn kostar um 28.000 í USA.

1tb

Snjóbretti/hjólabretti renna saman

Þetta er bara sniðugt.
snjobretti

Sjá video; þetta er alvöru :)

Blaðsíða 40 af 50« Fyrsta...102030...3839404142...50...Síðasta »