Fátt er hallærislegra en föt á hunda. Við kynnum til sögunnar regnhlíf fyrir hunda.

Hundaregnhlífin
Fátt er hallærislegra en föt á hunda. Við kynnum til sögunnar regnhlíf fyrir hunda. ![]() Hundaregnhlífin Apple tilkynnti í gær nýja árgerð af MacBook Pro fartölvulínunni sinni. Flest allt innvolsið er uppfært með hraðari og betri hlutum en það sem vekur mesta athygli er Thunderbolt. Thunderbolt er ný uppfinning frá Intel sem er tengi/snúru lausn þar sem hraðinn er margfalt meiri en í USB og Firewire snúrum. Annað sem má telja upp er að Facetime er komið í almenna útgáfu og nú með HD upplausn, SDXC kortarauf og eins og áður sagði nýjir örgjörvar og skjákort. ![]() Nýji Makkinn og Thunderbolt logoið Þó að þessi Range Rover hafi aðeins verið tekinn í gegn er þetta engin “MTV Pimp my ride” útgáfa. Þetta er alvöru. Þessi hefði örugglega selst í 100 eintökum á Íslandi árið 2007. Bíllinn verður frumsýndur á bílasýningunni í Genf í næsta mánuði. Verðið er ekki komið á hreint. ![]() iPad með þráðlausu lyklaborði Kanadíska gleraugnafyrirtækið Zeal Optics hefur í samvinnu við Recon Instruments kynnt til sögunnar gleraugu með innbyggðu GPS tæki. Gleraugun eru fyrst og fremst hönnuð fyrir snjóbretta- og skíðafólk en líklega verður boðið uppá útgáfur fyrir aðrar íþróttagreinar og áhugamál, eins og endúró og motocross, innan skamms. Í gleraugunum er sem sagt venjulegt GPS tæki og svo lítill skjár neðst í þeim. Mjög auðvelt að líta niður á skjáinn og má segja að einföldustu upplýsingar, eins og hraði, sjáist alltaf svipað og í “heads up display” í orrustuþotum og dýrum bílum. Á tækinu eru 3 takkar við gagnaugað þar sem flett er á milli mynda sem í boði eru. Hægt er að fylgjast með hraða, hæð, vegalengd, staðsetningu, hitastigi og tíma á auðveldan máta. Þegar ferðalaginu er lokið eru gleraugun tengd við tölvu með USB snúru og hægt að skoða túrinn myndrænt. Smellið hér fyrir video og frekari upplýsingar Þessi krani er hannaður af Yanko design með það í huga að spara vatn. Kenningar hönnuðana er að maður þarf aðeins einn lítra að vatni til að þvo sér um hendurnar en meðalmaðurinn noti 6 lítra til þess. Erfitt er að kenna fólki að spara sér þessa 5 lítra svo kraninn er hannaður fyrir þann sem vill spara en getur ekki tamið sig fyrir framan vaskinn (líka hentugt á almenningssalernum). Kraninn inniheldur sem sagt einn lítra í forðabúrinu og sleppur honum út þegar opnað er fyrir. Forðabúrið fyllist ekki fyrr en að því loknu og þá ættu hendurnar að vera orðnar hreinar og sóunin minni en ella. ![]() Ekki bara umhverfisvænn heldur líka flottur Efnt var til samkeppni um að byggja umhverfisvæna brú milli Bagnara og Scilla á Ítalíu fyrir skemmstu. Sú hugmynd sem endaði í öðru sæti í samkeppninni gæti verið sú sem breytir heiminum. Allavega aðeins. Þessi snilldar hugmynd kemur frá Ítölskum hönnuðum að samnýta burðarvirki brúarinnar í eitthvað nytsamlegt er líklega hægt að nota á mörgum stöðum í heiminum með tiltölulega litlum tilkostnaði. Í þessari hugmynd er gengið enn lengra en með þessar vindmyllur þ.e. vegurinn sjálfur er úr sólarsellum og lítil sölutorg eru uppá brúnni. Kannski er það of mikið af því góða. ![]() Vindmyllurnar eru undir veginum | ||
62 fyrirspurnir. 0.496 sekúndur. | ||
Síðustu komment