Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Þvottavél sem endurvinnur vatn

Vélin heitir AQUA og er frá Sanyo. Hún er með tank sem kallast Aqualoop sem geymir 50 lítra af vatni fyrir næsta þvott.

Einnig í vélinni eru möguleiki sem kallast Air Wash, en þar er hægt að þvo föt sem vanalega fara í hreinsun. Þar baðar vélin fötin úr lyktar og bakteríudrepandi efnum og þau koma fersk út.
Þvottavélin er með tromluna frekar hátt uppi þannig að aðveldara er fyrir fólk að komast að þvottinum án þess að beygja sig.

Vélin er komin á markað í Japan en ekki eru komin verð né tímasetning á sölu á Íslandi.

sanyo þvottavél

Kampavín frá Sony

Stærsta fréttin frá Sony þessa dagana er að PSP tölvan kemur kampavínslituð fljótlega!! Kannski ekki stórfrétt en frétt engu að síður. Spurning hvort þeir fái Britney til að auglýsa hana????

kampavinspsp

Flottar felgur

Toyota kynnti á bílasýningunni í Detroit þessar glæsilegu felgur:

toy2

Reyndar er bíllinn sem þær koma á, flottur líka….

Lesa meira af Flottar felgur

Lyklaborð með myndavél og síma

Þeir sem eiga ekki Apple tölvu með innbyggðri myndvél myndu kannski vilja kynnast þessari nýju hönnun. Fyrirtækið Solid Year kynnti í dag þetta lyklaborð sem er aðeins meira en bara lyklaborð. Lyklaborðið sjálft er nú bara venjulegt en auk þess er vefmyndavél (VGA), hljóðstillir, handfrjáls sími, gat fyrir heyrnatól og forritanlegir takkar fyrir margmiðlun og Skype. Verð er ekki uppgefið enn…

lykla

iPhone kynntur á MacWorld

iPhone er orðinn að veruleika. Þvílíkt tæki. Alvöru browser, snertiskjár, iPod og fullt af meiru sem verður tilkynnt nánar síðar (200 einkaleyfi skráð). Líklega verður hann ekki í boði í Evrópu strax þar sem hann er aðeins seldur með áskrift hjá AT&T  :(

Hann kemur í búðir í USA í Júní, en í Asíu 2008

i12
Lesa meira af iPhone kynntur á MacWorld

108 tommu sjónvarp !

Fyrir tæpum mánuði síðan sögðum við frá 103 tommu plasma skjá frá Panasonic en nú hefur Sharp gert enn betur. 108 tommur LCD sjónvarp var kynnt á CES sýningunni í Las Vegas í dag.

Skjárinn er 235cm á breidd og 132 cm á hæð og er með Black Advanced Super View Full-Spec HD LCD skjá sem er framleiddur í Kameyama í Japan.

Sharp þróaði fyrsta LCD litasjónvarpið í heimi fyrir nokkrum árum, reyndar var það árið 1988 og var sjónvarpið 14 tommur ;) Þeir hafa náð fleiri stærðarmetum síðan ’88 en þeir kynntu 45 tommu LCD árið 2004 og svo fyrstu 65 tommuna.

Skjárinn er ekkert slor heldur, hann er með 4 sinnum meiri upplausn en það sem telst vera HD í dag (4096 x 2160) og contrast ratio-ið er 1.000.000:1. 120 riða vinnsla og 4ms svörun.

108tom

Blaðsíða 39 af 50« Fyrsta...102030...3738394041...50...Síðasta »