Veftímaritið MacRumors.com hélt samkeppni um flottustu auglýsinguna. Sigurvegarinn í prentefni er þessi stórkemmtilega auglýsing, sem gerir Zune spilarann úreltan frá fyrsta degi. Svo er bara spurningin hvort Apple komi með einn svona í framleiðslu?

|
|
||
|
Veftímaritið MacRumors.com hélt samkeppni um flottustu auglýsinguna. Sigurvegarinn í prentefni er þessi stórkemmtilega auglýsing, sem gerir Zune spilarann úreltan frá fyrsta degi. Svo er bara spurningin hvort Apple komi með einn svona í framleiðslu?
Hópur sérfræðinga frá MIT í Boston og Cambridge í Bretlandi hafa sent frá sér frum-teikningar af flugvél sem ætti að geta flogið án hávaðamengunar fyrir fólk á jörðu niðri. Vélin er einnig gríðarlega eyðslugrönn á eldsneyti. Þónokkrar vélar hafa verið hannaðar í gegnum tíðina þar sem vængurinn og búkurinn eru samvaxin á svo stóru svæði að talað er um að vélin sé vængurinn, t.d. B2 sprengjuvélin. Öll vélin sér um að framleiða ‘lift’ svo möguleikinn er að fljúgja hægar í aðflugi og brottflugi, sem krefst minni orku og þ.a.l. minni hávaða. Engir flapar eru á vélinni og mótorarnir eru innan í búknum en hanga ekki utaná eins og á þotum sem við þekkjum í dag. ![]() Hvað er flottara en glerfelgur? Ekkert. Þessar sáust á bílasýningu í Las Vegas í vikunni og fást í 20-22 og 24″ og kosta $2.000 stykkið. ![]() Nýjungarnar streyma frá raftækjarisanum Samsung í Kóreu. Það nýjasta á Evrópumarkaði er GSM sími á stærð við þumalputta á fullorðnum karlmanni. Síminn er flott hannaður og opnast með snúningi. Síminn er með mp3 spilara og 1gb flash minni sem heldur um 250 lögum.
Smellið hér til að sjá fleiri myndir Frábær tækninýjung hefur birst frá fyrirtækinu Eye-Film. Minniskort sem er einnig WiFi netkort!!. Kortið er komið í dreifingu í Beta útgáfu í 512mb stærð sem verður uppfært í 1GB síðar. Af kortinu sendir þú svo myndirnar beint inná PC tölvuna þína eða Makka og þarft enga snúru. Kortið er af SD staðli en Compact Flash Type II millistykki fylgir. Vá hvað tækninni fleygir fram….
Nýjasta undrið á markaðnum er frá A4Tech í Kóreu. Þeir eru búnir að leysa hið hvimleiða vandamál með þráðlausa mús sem verður batteríslaus. Músin er knúin af hreyfingunni sem notandinn hreyfir hana. Músamottan leikur þar stórt hlutverk en hún er segulmögnuð og er stungin í samband við USB til að fá orku. Músin er með 7 tökkum og skrunhjóli en svo er bara spurning hvort öll hendin á mann verði rafmögnuð eftir erfiði dagsins… ![]() |
||
|
|
||
Nýlegar athugasemdir