Hver man öll lykilorðin sín?

Nú er komin lausn fyrir okkur sem geta ekki munað öll lykilorðin sín. Tækið er lítið sem mús og tengt með USB við tölvuna. Þegar maður er á síðu sem biður um lykilorð, setur maður bara puttann á tækið og slær svo inn lykilorðið. Næst þegar þú ferð á síðuna en nóg að setja puttann á tækið.
Tækið þekkir fingrafarið þitt og öll lykilorðin. Nú þarf maður ekki að muna neitt lengur og Soduko er eina leiðin til að halda heilanum í æfingu.

Digital_fingerprint

Uppseldur á 92 sekúndum

Er það heimsmet? Að selja alla bílana sem á að framleiða á 92 sek. Það hlýtur að vera. Enda er bíllinn ekkert slor. Upphaflega er bíllinn BMW M6 blæjubíll en Neiman Marcus hefur aðeins frískað uppá gripinn. Lakkið á bílnum er sérstakt Rúbí-svart og hlutir í innréttingunni eru sprautaðir með Píanó svartri málningu. Sportsætin er gull-brún Merino leðursæti sem er stjórnað með rafmagni.
11 hátalarar eru í bílnum og er sérstakt surround kerfið er ótrúlega fullkomið og hljómhreint.
Stýrið er sérsmíðað og fleira og fleira.
Vélin er V10 og skilar 500 hestöflum.
Verðið í USA var $139.000 og seldist öll framleiðslan uppá 50 bíla upp á 92 sekúndum

m6

12mm þykkt sjónvarp frá Samsung

Nú er plasma og LCD að verða úrelt! Samsung hefur kynnt 17″ sjónvarp sem er af nýrri kynslóð díóðu tækni (AMOLED). Glerið er aðeins 1,8mm á þykkt og sjónvarpið sjálft er 12mm. Með þesari tækni nást mjög nákvæmir litir og er skerpan 1000:1. Upplausnin er 1600×1200, svörunartíminn er minni en 0.01ms. Ekki er komin dagsetning á fjöldaframleiðslu en biðin er hafin…

S1

Smellið hér fyrir fleiri myndir Lesa meira af 12mm þykkt sjónvarp frá Samsung

Honda þotan komin á loft

Þá er hin glæsilega Honda Þota komin á loft. Þotan er nýstárleg hönnun á einkaþotu í svokölluðum Very Light flokki. Þotan hefur sæti fyrir 6 farþega og dregur rétt rúma 2000 km (Reykjavík-London=1900km).

Að venju fer Honda ekki troðnar slóðir í hönnun á þotunni. Til að mynda eru mótorarnir ofan á vængjunum sem leiðir til minni notkunar á styrktarbitum í skrokknum sjálfum og meira innanrýmis. Flugstjórnarklefinn er mjög hreinlegur og er nánast öllu stjórnað með snertiskjám nema sjálfu stýrinu og eldneytisgjöf.

Sjá nánar á heimasíðu Honda.
HondaJet

Hummer á 30

Þýski bílabætarinn GelgerCars hefur tekið Hummer H2 í gegn. Bíllinn var settur á 30″ felgur og Pirelli dekk. Vélin var skrúfuð uppí 556 hestöfl með keflablásara. Bíllin er nú 7.9 sek í hundrað og bremsudiskarnir eru 15″ með átta stimpla bremsudælum.
Svo er líka DVD, TV og allskonar fleira dót.

h2

Meira af flottum græjum frá Bose

Þetta lítur út fyrir að vera glæsilegt eyrnakonfekt frá Bose. Þau heita TriPort IE og koma í búiðir í dag. Þau eru einstök að því leitinu að þau eru að hluta til opin í gegn þannig að síður ætti að myndast þrýstingur í eyranu og því minni líkur á hausverk oþh.

Þrjár stærðir af töppum fylgja með og einnig leðurtaska. Verðið er $99 í USA.

IE

Blaðsíða 37 af 39« Fyrsta...3536373839