Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Bólusetningar án sársauka

Margir taka inn pillur vegna þess að sársaukinn við nálarstungur er svo mikill. Nýtt ísraelskt fyrirtæki hefur hafið framleiðslu á nýju tæki sem á ða útrýma sársauka við nálarstungu. Þetta er gert með nýju tæki sem einfaldlega fer svo stutt inní húðina að það nær ekki að sársaukataugunum. Aðferðin er kölluð MicroPyramids og í hana eru notaðir sílikon kristallar sem eru settir upp sem örnálar sem eru minni en 1 mícrometer á breidd. Þeir segja að þetta sé algjörlega sársaukalaust og ætti því að geta hjálpað ungum sem öldnum sem fá aðsvif þegar nálin nálgast. Eins og sést á myndinni er svo nafnið á öllu saman NanoPass.

nanopass

Fleiri þríhjól

Stundum koma hlutirnir nokkrir í einu. Tvö önnur þríhjól hafa verið kynnt nú stuttu eftir að hjólið hér á undan hjól var kynnt. Þetta eru hjólin Silence PT2 og VentureOne.

Þau eru kannski með aðra hugsun að leiðarljósi. Þau eru bæði “umhverfisvæn”.

Silence PT2 er þriggja hjóla rafmagnsfarartæki. Reyndar nokkuð flott græja, með háglansandi lakki og nýtískulegri innréttingu. Hægt er að aka um 180 til 400 km á einnri hleðslu. Hámarkshraðinn á að vera í kringum 180 km/klst. Verðið er um 3 millur ISK í USA. (yfir 5 millur heimkominn)

pt2

Svo er það VentureOne. Hann er aðeins öðruvísi, með eitt hjól að framan og tvö að aftan. Hann hallar sér inní beygjurnar með hjálp tölvukerfis frá Carver Engineering. Um borð er veltibúr, loftpúðar og margt líkt venjulegum bíl. Þó er þetta skráð sem mótorhjól og það þarf mótorhjólapróf til að aka þessu. 3 komast fyrir inni. Hægt er að fá bensín/rafmagns útgáfu eða bara rafmagnsútgáfu. Með litlum bensínmótor eyðir hann innan við 1 lítra á hundraðið en rafmagnsgræjan kemst yfir 300 km á hleðslunni. Verðið er aðeins 1,3 millur fyrir blendinginn en 1,6 fyrir rafmagnsbílinn.

vone

Flott pæling í þríhjóli

Flest þríhjól hafa hingað til haft eitt dekk að framan og tvö að aftan en bandaríski framleiðandinn Can-Am hefur kynnt nýja hönnun til sögunnar. Þetta hjól kalla þeir Spyder og segja þeir það stöðugra og skemmtilegra en fyrrnefnd hönnun. Hjólið er með 106 hestafla Rotax mótor sem er 990cc V-twin. Hægt er að velja á milli 5 gíra beinskiptingu og rafstýrðrar þumal-skiptingar.

canam

Nýr dræver

Nike ætlar sér að bylta golfheiminum með nýjum ferköntuðum dræver. Þeir segja að menn drævi lengra, beinna og allt.

Græjan kallast Sasquatch Sumo2 Driver. Maður hefur nú séð betri nöfn en þetta !

sumo2

Vöfflur eru svo 2006

Nú getur hver sem er farið í framleiðslu á kleinuhringjum. Þetta glæsilega vöfflujárn kleinuhringjajárn gerir 6 fulllkomna kleinuhringi á örskömmum tíma. Uppskriftin að hringjunum fylgir með og svo fylgja einnig uppskriftir að fullt af kremum og glassúrum ;)

Við viljum sjá svona í Elko, strax….

kleinujárn

Allir að herma eftir iPhone

Asus hefur kynnt sínar hugmyndir í keppninni um að herma eftir iPhone. Ekki eru komnar miklar upplýsingar enn, því þetta er jú aðeins á teikniborðinu.

asus2

önnur mynd fyrir neðan

Lesa meira af Allir að herma eftir iPhone

Blaðsíða 34 af 50« Fyrsta...1020...3233343536...4050...Síðasta »