Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Nýtt lögguhjól

Bandrískt fyrirtækið T3 Motion kynnti á dögunum nýtt lögguhjól eða löggufarartæki. Tækið er þriggja hjóla rafmagnstæki sem kemst í 30 km hraða og eyðir rafmagni fyrir 10 krónur á dag!!

Tækið kostar bara rúman 500.000 kall þannig að má búast við að mæta öryggisvörðunum í Smáralind á svona græju fyrir jólin.

logga1

Lesa meira af Nýtt lögguhjól

Ný tegund rafhlöðu

Hópur japanskra uppfinningamanna hefur sent frá sér nýja tegund af rafhlöðu. Rafhlaðan er úr sérstakri tegund af plastefnum og hægt er að hlaða hana á aðeins 60 sekúndum allt að 1000 sinnum.
Rafhlaðan er aðeins um 200 nanometrar á þykkt og er algjörlega glær sem opnar mikla möguleika. Í framtíðinni mætti sjá hana sem hluta af LCD skjá í fartölvu eða annað slíkt.

rafhlada

Milljón dollara fartölva

Breska lúxusfyrirtækið (hvað orð er það?) er hugsanlega að setja á markað fartölvu sem á að kosta 1 milljón dollara (70 milljónir króna). Einungis ein mynd er til af tölvunni en upplýsingar eru um að áferðin á tölvunni er lík og á píanói. Skjárinn er 17″ og er með sérstakri glampafrírri húð og sjálfhreinsibúnaði. Harði diskurinn er 128GB SSD og það er Blu-ray diskaspilari.

“on” takkinn er auðvitað gerður úr demanti.

1mdolar

Kassinn á bakvið er einhverskonar geymsla fyrir tölvuna, lokið á honum rennur sjálfkrafa til hliðanna og tölvan kemur í ljós !! 

Apple TV fær ágæta dóma

Krakkarnir hjá Engadget eru búnir að prófa nýja Apple TV-ið sem lengi hefur verið beðið eftir. Þetta þykir hin fínasta græja en gallarnir eru nokkrir. Á meðal kosta sögðu þeir að uppsetning og upphafsskrefin væru mjög auðveld. Allt viðmót er eins og í iTunes enda er það notað sem aðal stjórntækið. Einnig eru gæðin góð, hraðinn mjög góður og t.d. ljósmynda-showið rosaflott.

Gallarnir eru hins vegar þeir að maður verður að vera með WideScreen sjónvarp og verða sjónvarpsþættir og tónlistarmyndbönd frekar asnaleg í laginu eftir að búið er að skala það niður í 720punkta. Einnig er galli að ekki er hægt að horfa á .avi fæla í sjónvarpinu !! Maður verður að umbreyta þeim í H.264 staðalinn sem iPod (og iTunes) notar. Þetta er einmitt staðallinn sem iTunes verslunin í USA selur myndirnar sínar í. iTunes verslunin er auðvitað ekki aðgengileg frá Íslandi. Umbreytingin á gamla myndasafninu sínu tekur svo langan tíma að maður nennir engan veginn að standa í því.

Svo er það verðið. Apple búðin segir að Apple TV muni kosta 39.900 og koma um miðjan apríl.

aTV

iTurn

Ameríkanarnir kalla hann iTower en hvað um það. Þetta er flotturhátalarastandur fyrir iPodinn. Hann er um 130 cm á hæð og tekur lítið pláss á gólfinu, aðeins 25 cm. Ofaná er vagga fyrir iPodinn en innaní er upptrekkjanleg snúra sem þú getur sett í samband við vögguna sem fylgdi með spilaranum. Þannig er hann tengdur við tölvuna og hleðslu í einu.

Í turninum sjálfum eru 4 hátalarar og einn bassi sem er innbyggður, og segja menn að sándið sé þrælgott.

Þráðlaus fjarstýring fylgir

iturn

Græjan kostar $199 hjá Sharper Image

Nýr hamar !

Sumir hlutir haldast óbreyttir svo áratugum skiptir. Oftast vegna þess að hönnunin er góð og þeir virka. Hamarinn hefur til dæmis verið eins í langan tíma, en nú hefur Douglas Tools kynnt nýjan hamar sem á að vera sterkari og öflugri. Kannski er hann bara sniðugur fyrir smiði sem vantar eitthvað nýtt til að spjalla um í kaffiskúrnum.

douglas

Blaðsíða 30 af 50« Fyrsta...1020...2829303132...4050...Síðasta »