Þetta lyklaborð kemur skemmtilega á óvart. Það er hannað með LCD snertiskjá á hægri hluta þess sem bæði er músarflötur líkt og á fartölvu og hins vegar talnalyklaborð. Gripurinn kostar aðeins $69 og fæst hér.

fleiri myndir fyrir neðan.
|
|
||
|
Þetta lyklaborð kemur skemmtilega á óvart. Það er hannað með LCD snertiskjá á hægri hluta þess sem bæði er músarflötur líkt og á fartölvu og hins vegar talnalyklaborð. Gripurinn kostar aðeins $69 og fæst hér. fleiri myndir fyrir neðan. Loksins er komin lausn fyrir okkur sem vildum ekki kaupa okkur Harley-Davidsson því þeir voru ekki nógu umhverfisvænir. Þetta hjól heitir Tequila Sunrise og er gert úr koltrefjum af Jason Batters Design. ![]() Tequila sunrise Gott í ferðalagið…
Bang og Olufsen hefur sett á markað 103 tommu plasma sjóvarp í DeoVision 4 línunni sinni, þar sem áður voru bara 50 og 65tommu sjónvörp. Þetta er ekki amalegt sjónvarp enda með öllu því flottasta sem B&O hefur uppá að bjóða. Tækið er auðvitað í fullri HD upplausn, með sjálfvirkri stillingu á litum og birtu (VisionClear), standi sem tjakkar sig upp sjálfkrafa og ýmislegt annað. Líklegt þykir að hönnunarferlið á þessu skrímsli hafi verið samþykkt þegar Hannes Smárason átti 15% hlut í félaginu og ætlaði að gera það að heimsveldi. Verðið er aðeins um 20 milljónir króna en fyrir þá upphæð mætti t.d. kaupa
Fyrir neðan er svo smá myndband frá B&O um nýja gripinn. Hversu þreytandi er það að sækja eyrnatækin sín í vasann þegar þau eru öll flækt og snúin. Nú er bara málið að taka kaupa sér svona uglu sem er dulbúin sem eyrnatækjahaldari. Nánast frítt, aðeins %5 hér. Plan B er að föndra þetta sjálfur heima, smá spýta, sög og bor ættu að redda þessu.
Benz verksmiðjurnar voru að prufukeyra þennan vetnisknúna A-Benz í vikunni í Kaliforníu. Ekki margir vetnisbílar hafa sést á götunum þrátt fyrir ýmsar yfirlýsingar og draumóra. F-Cell kallast mótorinn er er í raun fyrsta kynslóð mótora frá Benz sem komast fyrir í fólksbíl. Vetnistankurinn er 5000psi sem fæðir brunarými sem framleiðir rafmagn. Rafmagnið er svo notað til að knýja 87 hestafla rafmagnsmótor. Óopinberar tölur frá Benz segja að þeir séu komnir yfir 1,5 milljón ekna kílómetra á vetnisfólksbílum. |
||
|
|
||
Nýlegar athugasemdir