Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Hraðamet

Nú hefur V150 farþegalest náð að komast upp í 574,8 km/klst eða 357 mph og hefur þar með náð að bæta fyrrum hraðarmet hraðlesta.

En fyrrum hraðar metið áttu hún sjálf og var um 320 mph .
Sem segir manni auðvitað að ef Ríkisstjórnin mundi ákveða að setja eina mill Ísafjarðar og Reykjavíkur þá væri maður undir klukkutíma á milli !!! .. Svo auðvitað verður það ekki gert fyrr en við erum byrjuð að búa út í geim og þá eigum við öll flugbíla sem fara yfir 900 km/klst svo að það skiptir eingu máli

flottur lampi

Hérna erum við að tala um 18 karta gullhúðaðanlampa sem er gerður úr ekta AK-47.

Sagt er að þetta er svona ekta fyrir Tony Montana lífstíl en ég veit ekki .

Mér finnst þetta bara alveg huggulegt hann minnir

mann ekkert á stríðið eða neitt þannig.

Bara flottur stíll og mjög klassíst.

Kostar aðeins 1695 $ eða 113.565 íslenskar kr

í útlöndum

Ný leið til að sjá út um rúðuna í rigningu

Nú þegar við erum á tíma nano-tækni og sjálfstýringu á eins mörgu og hægt er. Þá getur auðvitað meðal Jói ekki haft tíma í því að setja rúðuþurkurnar í gang í hvert skipti sem það rignir. Hann hefur nóg að gera með að vera tala í símann í gegnum handfrjálsabúnaðinn auðvitað. Svo að þeir í Purdue university hafa nú þróað með stolti nýtt efni sem hægt er að mjaka yfir rúðuna hjá sér og mynda þannig himnu sem lætur rigningu, þoku og meira segja olíu fara af rúðuni.

Þegar regnið eða hvaða vökvi sem er sest á rúðuna þá fer hann í vist form og raðast þannig á bíl rúðuna hjá þér svo það er ómögulegt að sjá út og í flestum tilvikum þyrfti maður að grípa til þess ráðs að setja rúðuþurkunar á .

En nei ekki er öll von úti enn því að þetta efni leysir upp þetta form sem vökvin raðar sér í og leiðir hann í burtu frá því svæði sem þú villt sjá út. Því er líka spáð að þetta verður gott að nota í loft síur og margt fleira sem ekki er ráðlegt að vatn sé að safnast upp .

Efnið er enn þá í prófunum svo ekki er vitað hvenær það kemur á markaðinn .

Vondandi er það bara umhverfisvænt því þá ætti maður að geta notað það án allra vandamála

Sniðug lausn á snúruvanda

Belkin hefur framleitt aukahluti fyrir iPod í nokkur ár auk þess að vera með USB höbb og fleira. Þeir eru að koma með nýja línu á markaðinn af höbbum/dósum í skrifborð. Þetta getur verið bráðsnjallt eins og myndirnar gefa til kynna. Höbbarnir eru til bæði í 5cm og 7,5cm þvermáli. Verðið verður líklega um $40 í USA en óvíst er hvenær þetta kemur í búðir, en það verður fljótlega.
belkin hub

Starfsmenn óskast

Hlutir.is óska eftir starfsfólki til að skrifa greinar á vefinn. Skilyrði eru græjuáhugi, þokkalegt vald á íslenskri stafsetningu og internettenging. Starfsmenn geta skrifað eina grein í mánuði eða margar á dag, eftir hvað þeim hentar.
Hlutir.is stefna á að auka enn umfjöllun sína um græjur og vísindi. Standa fyrir prófunum og neytenda-umfjöllun um tæki og tól. Þetta er tækifæri fyrir áhugasama um að taka þátt í skemmtilegri uppbyggingu og mótun á vefsvæðinu.
Hafið samband við hlutir@hlutir.is fyrir nánari upplýsingar (muna að senda símanúmer).

PS3 fæst gefins fyrir sigurvegarann í 24 tíma brandarakeppni

Hlutir.is eru búnir að vera með PS3 í prófunum frá Óla í GameTíví í nokkra daga. Við fengum 8 leiki, nokkrar Blue-Ray myndir og allskonar fylgihluti til að prufa. Greinin kemur svo hérna hjá okkur eftir nokkra daga. En við erum búnir að prófa tölvuna og áttum að skila henni, en fengum leyfi til að gefa hana einum tryggum lesanda :D

Hvernig eigum við að velja lesanda? Fyrstur kemur fyrstur fær?? Hver er sætastur?? Hver er hraðastur í NFSD Carbon??

Allt þetta er svo erfitt í framkvæmd, þannig að við ætlum að láta þann vinna sem skrifar besta brandarann í athugasemdirnar hér fyrir neðan. Munið eftir að hafa réttan email (sem enginn sér) svo við getum haft samband til baka. Hver og einn má senda inn fleiri en einn brandara.
Keppnin byrjar NÚNA og stendur í 24 klst.

Blaðsíða 29 af 50« Fyrsta...1020...2728293031...4050...Síðasta »