Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Apple hannar mælaborð í bíl

Volkswagen kynnti í vikunni nýjan bíl á bílasýningunni í Los Angeles. Það er ekki frásögum færandi nema hvað Apple hefur hannað mælaborðið og útvarpið í bílinn í samvinnu við VW. Útvarpið er sem sagt 7″ snertiskjár með nokkurs konar CoverFlow og þaðan er einnig stjórnað miðstöðinni og þessum helstu hlutum bílsins. Skipt er á milli laga alveg eins og á iPod touch og svo sést myndin af plötuumslaginu í mælaborðinu einnig.

Flott framtak hjá Apple en þeir hefðu nú getað byrjað á einhverri annari bílategund en þessum VW Space UP! (upphrópunarmerkið eru hluti af nafni bílsins!)

space 2

Fleiri myndir….

Lesa meira af Apple hannar mælaborð í bíl

Dell komnir með XPS One í verslanir

Dell hefur hafið sölu á XPS One í Bandaríkjunum. Tölvan er nokkuð lík hugmyndinni um iMac þ.e. tölvan og skjárinn eru eitt og sama stykkið. Tölvan er nokkuð dýrari en samsvarandi makki ef hægt sé að bera það saman. Tölvan er með 20″ skjá, 2GB DDR2 minni, öflugum Inter Core 2 Duo örgjörva (E6550), Bluetooth 2.0, 8 korta kortalesara, 802.11a/b/g/n WiFi, 256MB ATI Radeon HD 2400 PRO skjákort og 500GB SATA harður diskur. Svo er hægt að fá Blu-ray brennara, sjónvarpskort og fleira. Tölvan hlýtur að mæta til landsins fyrir jól.

Verðskráin hjá Dell í USA

xps5  

Fleiri myndir ….  

Risa Parísarhjól í Kína

Kínverjarnir ætla að setja eitt svakalegt met á næstunni. Þeir ætla ða byggja stærsta parísarhjól í heimi. og það er engin smásmíði. Núverandi methafi er Odaiba hjólið í Tokyo sem er 113 metrar á hæð og þykir sumum nóg. Nýja hjólið sem verður í Peking mun verða 204 metrar á hæð :)

Hjólið mun kosta um 6 milljarða íslenskra króna – 6.000.000.0000 krónur – og mun hafa 48 rólur ef rólur má kalla. Hver róla er í raun salur, því það komast 40 manns í hvern þeirra og er þar loftkæling meðal annars. Þannig að um 1920 manns eru í tækinu í einu.

Því miður ná Kínverjarnir ekki að klára hjólið fyrir Ólympíuleikana á næsta ári.
parisarhjol

gSíminn staðfestur

Ameríska stórfyrirtækið Google hefur staðfest Google Símann og mun hann koma út innan árs. Hafa sögusagnir verið nokkuð lengi í gangi en nú hefur það verið staðfest. Ekki er víst að síminn muni heita Google Phone en hann verður með allsérstöku sniði. Hann verður byggður á Linux stýrikerfi og með Java og verður Open Source. Þannig munu ýmis fyrirtæki koma að hönnun símans þ.á.m. HTC, LG, Motorola og Samsung. Í Bandaríkjunum munu Sprint og T-Mobile selja SIM kort í hann og stefnt er að því að koma út um allan heim á sama tíma.

34 fyrirtæki koma að þróun símans og má þar nefna Nvidia með grafík og Skype með internet síma.

Hönnunarstaðlar verða tilbúnir fyrir forritara eftir viku.

Google verður með auglýsinga einkleyfi í símanum.

gsimi

Ætli hann muni líta svona út?

Byggt á: CNN, USATODAY og New York Times

Yddari dauðans

Iðnhönnuðir geta átt sína dimmu daga eins og við hin.

yddari

Næturstaður fyrir iPhone-inn

Eitt tæki með mörg hlutverk. iPhone-inn eða iPod touch er hlaðinn yfir nótt, og alltaf á sínum stað. Í tækinu er líka FM útvarp, klukka, verkjaraklukka, og 20W magnari til að spila af iPhone-inum eða útvarpið. Fæst í hvítu og svörtu. Virðist vera sniðug græja…
Fæst á Amazon fyrir tíuþúsundkall.

vekjkl2

Lesa meira af Næturstaður fyrir iPhone-inn

Blaðsíða 20 af 50« Fyrsta...10...1819202122...304050...Síðasta »