Láshjól

Þetta er sniðug uppfinning í kreppunni, nú þegar nánast öllu er stolið. Reiðhjól sem þarf engan lás, því hjólið er lás. Hjólið er ekki komið í framleiðslu ennþá en hinn 21 árs uppfinningarmaður, Kevin Scott, hjólar alsæll um á frumgerðinni (sjá mynd).

Þá þarf bara að fjölga aðeins ljósastaurunum í borginni svo allir fái stað til að leggja hjólinu sínu á.

Hjólið vafið um staurinn

Lesa meira af Láshjól

Flott borðtölva

Lenovo ætlar að setja í almenna sölu nýja flotta tölvu seinna í mánuðinum. Hún ber nafnið IdeaCentre A310 og er bara nokkuð hugguleg.

Hún er nánast eins og fartölva með stóran skjá á súlu fyrir ofan og þráðlausu lyklaborði og mús. Inní henni er 2.26GHz dual Core og 45nm grafískt kort.

Mestu vonbrigðin svona fyrirfram eru kannski þau að geisladrifið er utanáliggjandi

HugmyndaMiðstöðin frá Lenovo

Piparsveinar athugið

Svona stóll er nauðsynlegur í hvaða piparsveinaíbúð sem er. Þetta er algjör ísbrjótur í matarboðum og skvísusegull í partíum.

Í stólnum eru 200 metrar af sérstökum vír sem lýsist upp (og þú færð ekki straum). Hægt er að hafa ljósið stöðugt eða blikkandi í takt við tónlistina.

Stóllinn góði

Hentug sólarsella

Þessi hugmynd er nokkuð góð. Reyndar er þessi sólarsella ekki komin í framleiðslu en það hlýtur að styttast í það. Sólarsellan er sveigjanleg og bundin inní ólina sem allir kannast við þegar þeir hengja myndavélina um hálsinn.

Nú ætti að vera meira pláss í töskunni fyrir vatn ef maður ætlar í vikutúr í eyðimörk.

Meistari Jón Gnarr mun líklega styðja þetta framtak, enda “innlend” orka.

Koddabindi komið í búðir

Enn ein snilldaruppfinningin lítur dagsins ljós. Flest þau tilefni sem fá menn til að setja upp bindi eru drepleiðinleg og gera mann syfjaðan. Sumir geta sofið í stólnum en aðrir þurfa aðeins að halla sér fram á borðið. Hér er lausnin fyrir þá. Falinn uppblásanlegur koddi inní venjulegu bindi. Kostar bara $20 í Bandaríkjunum.

Koddabindi

Támús

Í fyrstu virðist þetta alveg fáránleg hugmynd en svo fer maður að hugsa…. Fyrst var þetta hugsað fyrir fólk með einhverskonar fötlun á efri hluta líkamans en svo verður örugglega hægt að víkka þetta eitthvað út, t.d. í skotleiki eða píanóleik.

Maður fer í Támúsina eins og sandala

Blaðsíða 2 af 4212345102030...Síðasta »