Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Porsche reynir við yngri markhópa

Íslensku bankarnir eru ekki þeir einu sem markaðssetja vörur beint gegn börnum. Nú hefur þýski risinn Porsche sett snjósleða á markað.

Sleðinn er nefndur “kindebob” í Þýskalandi sem mætti þýða Barnabobbi. Sleðinn kostar bara 7000 kall í Þýskalandi og flautan virkar!

kindebob

Sniðugt í skottið

Á þessum síðustu og bestu tímum er orðið nokkuð erfitt að finna bílastæði. Benz er kominn með skemmtilega lausn á þessu vandamáli. Þú bara leggur aðeins fyrir utan mestu bílastæðavandræðasvæðin (flott orð) og hjólar restina af leiðinni.

Þetta er ekki fyrsta hjólið sem Mercedes-Benz framleiðir en þetta er það handhægasta og þarf aðeins 2 handtök til að opna eða leggja það saman. Einnig á þetta að vera hreinlegt þar sem hjólið er sérstaklega hannað til að smita ekki olíu puttana.

Stærðin er bara 800x800x220 mm samanbrotið. Svo smellpassar það í skottið á CLK blæjubíl og líklega fleiri útgáfum síðar. Þetta er rétta leiðin til að skoða sig um, umhverfisvænt og skemmtilegt.

m1

m2

Lesa meira af Sniðugt í skottið

Kaldhæðnir klósettburstar

Í Bandaríkjunum seljast nú gríðarvel þessir fínu klósettburstar. Þeir þykja nokkuð líkir George W. Bush og Hillary Clinton og heyrst hefur af nokkrum sem hafa keypt báða burstana!!

Spurning hvort einhver framleiði svona bursta með Binga og Sollu??

klosettburstasr

iPod í góðri gæslu

Spurning hvort maður hafi eitthvað við stálhlíf utanum iPodinn sinn að gera? Allavega datt Japönunum í Shimura í hug að framleiða svona flott hlíf fyrir nýja iPod nano-inn. Hlífin kostar um 10 þúsund kall í Japan og þykir það nokkuð mikið.

jap

Jólagjöf piparsveinsins

Hvað á maður að gefa 35 ára frænda sínum sem er enn á lausu? Lausnin er hér. 

playboy

700 blaðsíður af skvísum. Playboy: The Complete Centerfolds. Nafnið segir það allt. Þetta eru allar opnustúlkurnar í Playboy tímaritinu frá upphafi. Bókin kemur í glæsilegri leðurtösku með kanínulogoinu á og kostar aðeins 19 þúsund kall í USA ($315).

Örflaga í boltanum

Alþjóðafótboltasambandið FIFA hefur greint frá því að þeir ætla að nota bolta með örflögu á næsta heimsmeistaramóti sem verður í Japan árið 2008.

Kerfið verður þannig að það verða fjórir skynjarar á innanverðum stöngunum og svo verður flaga í boltanum sjálfum. Ef boltinn fer á milli skynjarana, yfir marklínuna, þá fær dómarinn skilaboð í klukkuna sína um að boltinn hafi farið yfir. Skilaboðið eru send dulkóðuð til dómarans.

fifa

Blaðsíða 19 af 50« Fyrsta...10...1718192021...304050...Síðasta »