Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Láshjól

Þetta er sniðug uppfinning í kreppunni, nú þegar nánast öllu er stolið. Reiðhjól sem þarf engan lás, því hjólið er lás. Hjólið er ekki komið í framleiðslu ennþá en hinn 21 árs uppfinningarmaður, Kevin Scott, hjólar alsæll um á frumgerðinni (sjá mynd).

Þá þarf bara að fjölga aðeins ljósastaurunum í borginni svo allir fái stað til að leggja hjólinu sínu á.

Hjólið vafið um staurinn

Lesa meira af Láshjól

Flott borðtölva

Lenovo ætlar að setja í almenna sölu nýja flotta tölvu seinna í mánuðinum. Hún ber nafnið IdeaCentre A310 og er bara nokkuð hugguleg.

Hún er nánast eins og fartölva með stóran skjá á súlu fyrir ofan og þráðlausu lyklaborði og mús. Inní henni er 2.26GHz dual Core og 45nm grafískt kort.

Mestu vonbrigðin svona fyrirfram eru kannski þau að geisladrifið er utanáliggjandi

HugmyndaMiðstöðin frá Lenovo

Piparsveinar athugið

Svona stóll er nauðsynlegur í hvaða piparsveinaíbúð sem er. Þetta er algjör ísbrjótur í matarboðum og skvísusegull í partíum.

Í stólnum eru 200 metrar af sérstökum vír sem lýsist upp (og þú færð ekki straum). Hægt er að hafa ljósið stöðugt eða blikkandi í takt við tónlistina.

Stóllinn góði

Hentug sólarsella

Þessi hugmynd er nokkuð góð. Reyndar er þessi sólarsella ekki komin í framleiðslu en það hlýtur að styttast í það. Sólarsellan er sveigjanleg og bundin inní ólina sem allir kannast við þegar þeir hengja myndavélina um hálsinn.

Nú ætti að vera meira pláss í töskunni fyrir vatn ef maður ætlar í vikutúr í eyðimörk.

Meistari Jón Gnarr mun líklega styðja þetta framtak, enda “innlend” orka.

Koddabindi komið í búðir

Enn ein snilldaruppfinningin lítur dagsins ljós. Flest þau tilefni sem fá menn til að setja upp bindi eru drepleiðinleg og gera mann syfjaðan. Sumir geta sofið í stólnum en aðrir þurfa aðeins að halla sér fram á borðið. Hér er lausnin fyrir þá. Falinn uppblásanlegur koddi inní venjulegu bindi. Kostar bara $20 í Bandaríkjunum.

Koddabindi

Sweeeet

Fimmta umferð heimsmeistara keppninnar fer fram á morgun, en í dag voru keyrð qualify race og eitt moto hjá stelpunum. Bryndís frænka var að keppa, og endaði í 28.sæti. Reikna með að eitthvað hafi komið uppá þar sem hún á að vera örugg í topp 20 á góðum degi. Það fór að rigna þegar Mx1 strákarnir voru komnir á línu, og brautin varð mjög drullug og sleip. Kevin “The Kid” Strijbos sigraði MX1 qualify reisið sem er algjör snilld, hann hefur verið meira og minna frá í 3 ár vegna meiðsla, spurning hvort Krakkinn sé kominn aftur í sitt fyrra form ? Skemmtilegustu úrslitin voru hinsvegar í MX2 þar sem tveir vinir mínir voru í topp 4. Það var engin annar en frakkin Steven Frossard #183 á Monster Energy/Pro Circuit/Kawasaki sem vann, og meðleigjandi minn og æfingafélagi úr Belgíu, Nick Triest á Shineray/KTM sem endaði 4. ! Triest kom heldur betur öllum á óvart en bestu árangur hans á árinu er 12.sæti sem hann náði í fyrstu umferðinni í Búlgaríu í apríl.

Steven Frossard vann qualifyid í dag! Myndin er tekin þegar við vorum að æfa í hondapark í apríl.

Nick Triest #75. Nick eignaðist nýja kærustu eftir fyrstu umferðina í Búlgaríu, en í næstu tveim keppnum á eftir, Ítalíu og Hollandi gekk honum mjög illa, og bað liðsstjórinn hann vinsamlegast um að losa sig við kærustuna ef hann vildi halda sæti sínu í liðinu, en liðsstjórinn taldi hana vera að trufla einbeitninguna hans.

Össi, ef þú ert ekki í topp 10 í fyrstu keppninni á Ólafsfirði, þá verðuru vinsamlegast að losa þig við Maríu.

Veit ekki hvort þið kannist við þennan, en hann heitir Billy Laninovich. Hann er ameríkani og var á toppnum í supercross lites flokknum fyrir nokkrum árum. Keyrði m.a. fyrir Amsoil Honda og Factory KTM, einnig þekktur fyrir einu flottustu whippur sem sést hafa. Hann hefur þó síðustu ár þjáðst af þráðlátum meiðslum en kom þó til spánar og keyrði fyrir Aprilia og mun einnig keyra fyrir þá í Ameríska GP-inu í Glen Helen. Billy endaði qualify race-ið í 28.sæti af 33.

Smá drulla. Pourcel endaði 10. í dag.

Bíð spenntur eftir keppninni á morgun, hægt er að horfa á hana á www.freecaster.tv eða á Motors TV.

Blaðsíða 10 af 50« Fyrsta...89101112...203040...Síðasta »