Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Fartölvutaska og sólarrafhlaða

Kannski ekki nýtt af nálinni en fróðlegt engu að síður. Dunhill hefur sett á markað tösku sem kostar um 100.000 kall íslenskar í útlöndum. Taskan er með innbyggðu batterí sem hleðst af sólarorku og svo þegar þú setur fartölvuna í töskuna, færist orkan úr innbyggða batteríinu yfir í tölvuna. Einnig er hægt að hlaða [...]

Rafmagn framleitt með sólargeislum á Spáni

Fleiri eru að hugsa um orkuframleiðslu en Íslendingar.

Reistur hefur verið fyrsti turninn af mörgum sem framleiðir rafmagn með sólarorku. Turninn er við borgina Sevilla á Spáni og framleiðir rafmagn sem á að duga 6000 heimilum fyrir orku eða um 11 megawött. Stefnan er að knýja öll 600.000 heimilin í Sevilla.

Turninn er 40 hæða hár og umhverfis hann eru 600 speglar sem beina geislum sólarinnar á turninn. Hver spegill er 120 fermetrar.

turn1

Í turninum eru vatnsleiðslur sem framleiða gufu þegar sólargeislarnir beinast á þær. Gufan er geymd í tönkum og svo látin knýja túrbínur sem framleiða rafmagn.

Eftir að sólin sest nær turninn að framleiða rafmagn í um 1 klst.

Lesa meira af Rafmagn framleitt með sólargeislum á Spáni

Blaðsíða 2 af 212