
Þessi krani er hannaður af Yanko design með það í huga að spara vatn. Kenningar hönnuðana er að maður þarf aðeins einn lítra að vatni til að þvo sér um hendurnar en meðalmaðurinn noti 6 lítra til þess. Erfitt er að kenna fólki að spara sér þessa 5 lítra svo kraninn er hannaður fyrir þann sem vill spara en getur ekki tamið sig fyrir framan vaskinn (líka hentugt á almenningssalernum).
Kraninn inniheldur sem sagt einn lítra í forðabúrinu og sleppur honum út þegar opnað er fyrir. Forðabúrið fyllist ekki fyrr en að því loknu og þá ættu hendurnar að vera orðnar hreinar og sóunin minni en ella.

Ekki bara umhverfisvænn heldur líka flottur







Síðustu komment