Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Láshjól

Hjólið vafið um staurinn

Þetta er sniðug uppfinning í kreppunni, nú þegar nánast öllu er stolið. Reiðhjól sem þarf engan lás, því hjólið er lás. Hjólið er ekki komið í framleiðslu ennþá en hinn 21 árs uppfinningarmaður, Kevin Scott, hjólar alsæll um á frumgerðinni (sjá mynd).

Þá þarf bara að fjölga aðeins ljósastaurunum í borginni svo allir fái stað til að leggja hjólinu sínu á.

Hjólið vafið um staurinn

Lesa meira af Láshjól

Hentug sólarsella

152385-solar_charge_dslr_concept_original_original.jpg

Þessi hugmynd er nokkuð góð. Reyndar er þessi sólarsella ekki komin í framleiðslu en það hlýtur að styttast í það. Sólarsellan er sveigjanleg og bundin inní ólina sem allir kannast við þegar þeir hengja myndavélina um hálsinn.

Nú ætti að vera meira pláss í töskunni fyrir vatn ef maður ætlar í vikutúr í eyðimörk.

[...]

Támús

Maður fer í Támúsina eins og sandala

Í fyrstu virðist þetta alveg fáránleg hugmynd en svo fer maður að hugsa…. Fyrst var þetta hugsað fyrir fólk með einhverskonar fötlun á efri hluta líkamans en svo verður örugglega hægt að víkka þetta eitthvað út, t.d. í skotleiki eða píanóleik.

Maður fer í Támúsina eins og [...]

KTM frumsýnir rafmagnshjól

KTM rafmagnshjól

Austuríski mótorhjólaframleiðandinn KTM, ætlar að frumsýna nýja línu af mótorhjólum á alþjóðlegu mótorhjólasýningunni í Tokyo á morgun. 2 hjól verða kynnt og segir KTM að þessar frumgerðir séu mjög líkar því sem að almenningur geti keypt eftir nokkur misseri.

Nýja línan gengur undur nafninu “Freeride” og segir KTM að eftirspurn sé eftir umhverfisvænum hjólum á markaðnum í dag. Hjólin muni skila allt að 30 hestöflum og 45 newtonmetrum. Prófanir á hjólinu hafa reynst vel og staðið vel undir væntingum segir Harald Plöckinger hjá þróunardeildinni þeirra.

Lesa meira af KTM frumsýnir rafmagnshjól

Vetnisbíll frá Benz kominn á göturnar

Benz verksmiðjurnar voru að prufukeyra þennan vetnisknúna A-Benz í vikunni í Kaliforníu. Ekki margir vetnisbílar hafa sést á götunum þrátt fyrir ýmsar yfirlýsingar og draumóra. F-Cell kallast mótorinn er er í raun fyrsta kynslóð mótora frá Benz sem komast fyrir í fólksbíl.

Vetnistankurinn er 5000psi sem fæðir brunarými sem framleiðir rafmagn. Rafmagnið er svo notað til að knýja 87 hestafla rafmagnsmótor.

Óopinberar tölur frá Benz segja að þeir séu komnir yfir 1,5 milljón ekna kílómetra á vetnisfólksbílum.
Fcell

Lesa meira af Vetnisbíll frá Benz kominn á göturnar

Ford með sniðugan blending

Ford bílaverksmiðjan í USA hefur sett 20 blendinga í prófun í Kaliforníu. Þetta er ekkert splunkuný hugmynd en þeir eru með þeim fyrstu að hrinda henni í framkvæmd. Bílinn er sem sagt bæði hægt að hlaða með bæjarrafmagninu og svo keyrir hann eins og venjulegur blendingur á bensín og rafmagni.

Bíllinn er jepplingur sem kallast Escape og keyrir hann fyrstu 50 km á þess að bensínmótorinn fari í gang, eftir það hleður bensínmótorinn rafmótorana og skiptir bíllinn á að nota þá. Með þessu á að verða hægt að ná mjög lágri bensíneyðslu. Einnig myndi þetta henta einkar vel á Íslandi þar sem oftast eru keyrðar stuttar vegalengdir og rafmagnið er tiltölulega umhverfisvænt.
ford2

Lesa meira af Ford með sniðugan blending

Blaðsíða 2 af 512345