Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Blóðsykurmælir tekur við tárum

Blóðsykurmælirinn

Blóðsykurmælirinn

Milljónir manna um allan heim þurfa að stinga sig oft á dag í puttann til að ná í blóðdropa. Ástæðan er sú að þeir sem eru með sykursýki þurfa að mæla blóðsykur og hingað til hefur það aðeins verið gert með blóðdropum. Hönnun stendur yfir á tæki sem mælir blóðsykur útfrá tárum. [...]

Brúin til umhverfisvænni framtíðar

Vindmyllurnar eru undir veginum

Efnt var til samkeppni um að byggja umhverfisvæna brú milli Bagnara og Scilla á Ítalíu fyrir skemmstu. Sú hugmynd sem endaði í öðru sæti í samkeppninni gæti verið sú sem breytir heiminum. Allavega aðeins. Þessi snilldar hugmynd kemur frá Ítölskum hönnuðum að samnýta burðarvirki brúarinnar í eitthvað nytsamlegt er líklega hægt að nota á mörgum stöðum í heiminum með tiltölulega litlum tilkostnaði. Í þessari hugmynd er gengið enn lengra en með þessar vindmyllur þ.e. vegurinn sjálfur er úr sólarsellum og lítil sölutorg eru uppá brúnni. Kannski er það of mikið af því góða.

Vindmyllurnar eru undir veginum

Lesa meira af Brúin til umhverfisvænni framtíðar

Mótorhjól með aðeins eitt hjól

Ef rýnt er í myndina sést mótorhjólið hægra megin

Ryno Motors er lítið fyrirtæki í Vancouver í Kanada. Þeir eru búnir að vera í 3 ár að hanna eins-hjóla rafknúið mótorhjól og er það á lokaundirbúningi fyrir fjöldaframleiðslu.  Hjólið kemst 50 km á hverri hleðslu og hefur hámarkshraða uppá 40 km/klst. Áætlað verð í USA er um $3500 og þar sem rafmagnshjól eru [...]

Blóðþrýstingurinn mældur með iPad

asdf

Svo ýtir maður bara á Start

Fyrir tæpum tveimur árum kynnti Apple möguleikann á að tengja tæki frá þriðja aðila að iOS tækjum. Þeir lögðu einmitt mikla áherslu á að lækningabransinn væri kjörinn í að nýta sér þessa tækni.Einhvern tíma hefur það þó tekið að þróa tæki sem nýtast vel við iPad og iPhone. Uppá síðkastið hefur orðið vart við nokkur slík tæki; nú er hægt að fá upplýsingar úr bíltölvunni sinni í símann, mæla hitann á steikinni í ofninum og nú nýjast er blóðþrýstingurinn mældur í símanum.

Þó að hægt sé að kaupa blóðþrýstingsmæli í næsta Apóteki á 5 þúsund kall er þetta nýja tæki aðeins flottara. Dokkan heitir iHealth og með henni fylgir forrit sem heitir Blood Pressure Monitor. Ferlið er svo sem ekki flókið en fólk sem þarf reglulega að mæla blóðþrýstinginn getur með tækinu sparað sér heimsóknir á læknastöðvar og einnig mælt sig oftar en ella.

Niðurstöðuna úr prófunum er hægt að sjá á grafískan máta og hægt að senda í tölvupósti á lækninn sinn.

Lesa meira af Blóðþrýstingurinn mældur með iPad

Töfrabjór

Það er stórt vandamál að þurfa að bíða eftir bjór þegar mann langar virkilega í hann. Einhver ónefndur snillingur hefur greinilega lent í þessu vandamáli og ákveðið að gera eitthvað í málunum. Lausnin var að fylla glasið neðanfrá og loka svo fyrir gatið með segulloka!

Þegar glasið er sett á græjuna ýtir hún segullokinu [...]

Sparaðu tíma og vatn á klóinu

ecourinal

Tekist hefur að hanna pissuskál sem er bæði pissuskál og vaskur í senn. Vatnið sem notað er til að þvo hendurnar eftir þvaglátið er einnig notað til að sturta niður. Þetta þurfum við að fara skoða þegar kalda vatnið hækkar í verði uppúr öllu valdi. Athyglisvert.

Skýringarmynd

Lesa meira af Sparaðu tíma og vatn á klóinu

Blaðsíða 1 af 512345