
Apple kynnti í gær nýja tegund af tölvu sem þeir telja að eigi eftir að breyta því hvernig við njótum internetsins. Tölvan kallast iPad og er örþunn og öflug. Hún er með u.þ.b. 10 tommu snertiskjá (24,6 cm) og 10 klst líftíma batterís. Notendaviðmótið er líkt því sem þekkist frá iPhone og iPod touch en [...]
Nú er flatt í tísku (í sumum skilningi) þannig að framleiðendur eru farnir að hugsa útfyrir imbakassann. Flatir hátalarar eru sjálfsögð þróun á eftir sjónvörpunum. Þessir nýju hátalarar eru 2.5 cm á þykkt en á stærð við skilrúm og henta vel í sjónvarpsherbergið hengdir á vegg.
Hátalarnir heita Podium 1 og kostar parið $8.000 eða um hálfa milljón [...]
Gæðin á LCD og Plasma tækjum geta verið mjög mismunandi. Upplausnin og skerpan er stundum ekkert skárri en í gömlu túbutæki. Samsung hefur sett á markað flott tæki sem er samkeppnishæft í verði. LE46F86BD er vörumerkið, kannski ekki rosalega gott nafn en bíðið bara eftir upptalningunni í innihaldinu.
46 tommur
1920 x 1080 = full HD upplausn
1080p [...]
Keppnin í sjónvarpsbransanum snýst nú einna helst um að koma með sem þynnstan skjáinn á markað. Nú var Hitachi að kynna nýjan skjá á CEATEC sýningunni. Skjárinn er í HD upplausn og 32″ og stóru fréttirnar eru: hann er 18,8mm þykkur!!
Krakkarnir hjá Engadget eru búnir að prófa nýja Apple TV-ið sem lengi hefur verið beðið eftir. Þetta þykir hin fínasta græja en gallarnir eru nokkrir. Á meðal kosta sögðu þeir að uppsetning og upphafsskrefin væru mjög auðveld. Allt viðmót er eins og í iTunes enda er það notað sem aðal stjórntækið. Einnig eru gæðin góð, [...]
Fyrir tæpum mánuði síðan sögðum við frá 103 tommu plasma skjá frá Panasonic en nú hefur Sharp gert enn betur. 108 tommur LCD sjónvarp var kynnt á CES sýningunni í Las Vegas í dag.
Skjárinn er 235cm á breidd og 132 cm á hæð og er með Black Advanced Super View Full-Spec HD LCD skjá sem [...]
Nýlegar athugasemdir