Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

B&O með nýjan síma

Bang & Olufsen hefur sýnt nýjan síma sem kemur á markað í nóvember. Hann kallast Serenata og fyrir lengra komna. Í honum er alvöru hátalari og ICEPower magnari sem gefur þessi tæki alvöru sánd. Hægt er að opna stand undir honum þegar maður vill hlusta á græjurnar. Þegar maður vill ganga enn lengra er [...]

Einn nýr frá Sony-Ericsson

Nýji síminn frá Sony-Ericsson er nokkuð nettur. Hann heitir W580i Walkman og er frekar kynþokkafullur. Hann opnast í rennu og er með 2 megapixla myndavél, videoupptöku og spilun, bluetooth 2.0 með A2DP, memory stick micro rauf, 4 banda síma, kaloríumæli (fyrir hlaupara) og það sem er allra best: Pac-man og Ms. Pac-man. Nú er bara [...]

Er Google að koma með síma á markað?

Tölvurisinn Google hefur lengi verið grunaður um að vera með síma í þróun. Bensíni var helt á eld sögusagna um þetta þegar tævansk tækniblogg sagði að verið væri að framleiða prufueintök þar í landi. Þeir segja að síminn komi á markað í lok þessa árs og verði kominn útum allan heim á árinu 2008. [...]

Blackberry 8700v prófaður

Hlutir.is fengu um daginn Blackberry Pearl 8700v til prófunar. Tækið var prófað með ” BlackBerry Internet Service (BIS) sem er fyrir einstaklinga, einyrkja og minni fyrirtæki sem reka ekki eigin póstþjón, hafa fáa notendur eða þurfa einfaldlega ekki annað.
BIS veitir aðgang að tölvupósti, tengiliðalista, dagbók, aðgerðarlista og verkefnalista. Tölvupóstur berst í tækið á 15 mínútna fresti og símtækið lætur þig vita ef nýr póstur er í hólfinu með rauðu ljósi.” eins og segir á heimasíðu Vodafone.

Síminn sjálfur

8700Síminn er 110mm x 69,5mm x 19,5mm og vegur um 134gr. Innbyggt minni er 64mb og er hann með Li-Ion batteríi. í honum er Quad band, GPRS, EDGE, Bluetooth, USB tengi, MMS, Java, Vafri, Fjöltóna- og rauntónahringing.

Uppsetning:

Ágætlega gekk að setja upp símann, við settum upp tölvupóstinn í versluninni áður en hann var afhentur og virkar hann ágætega. Pósturinn er sóttur á 15 mínútna fresti og hægt er að stilla hvort það komi hljóð, víbringur eða ljós þegar nýr póstur kemur.
Þemað á valmyndum (theme) var nokkuð flatt og leiðinlegt í upphafi þannig að valið var að nota BB-Dimenson-icon sem var talsvert flottara.

Síminn er hlaðinn með hleðslutæki sem er stungið í USB raufina. Einnig hleðst hann þegar verið er að synca með USB snúrunni. Batteríið dugar í 4-6 daga.
Lesa meira af Blackberry 8700v prófaður

Allir að herma eftir iPhone

Asus hefur kynnt sínar hugmyndir í keppninni um að herma eftir iPhone. Ekki eru komnar miklar upplýsingar enn, því þetta er jú aðeins á teikniborðinu.

asus2

önnur mynd fyrir neðan

Lesa meira af Allir að herma eftir iPhone

Nokia komnir á QWERTY markaðinn

Nú geta jakkafatamennirnir glaðst enn meira því Nokia var að kynna E61i símann/tölvuna með QWERTY lyklaborði. Þetta er fyrsti síminn frá Nokia með svona lyklaborði. Síminn er með fjögurra banda GSM, UMTS og WiFi. Hann tengist við tölvupóstinn þinn eins og við var að búast en hann er einnig með 2 mp myndavél. Stýrikerfið [...]

Blaðsíða 3 af 612345...Síðasta »