Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Aldrei aftur batteríslaus… að deginum til

Bíómyndir í boði allt flugið!

Fyrirtækið Quirky er að koma með nýja útgáfu af sólarknúnu hleðslutæki sem er nokkuð sniðug. Tækið getur hlaðið helstu farsíma en nýjungin við tækið er sogskálin sem er sambyggð. Hægt er að smella tækinu á rúðuna í bílnum eða flugvélinni og halda hleðslunni. Einnig fylgir með venjulegur standur fyrir borð.

Quirky ætlar að byrja [...]

Grillaðu með símanum þínum

Nú verður enn meira gaman að elda

iPhone er að taka yfir heiminn smátt og smátt. Nú geturðu fylgst með hvernig steikinni líður í ofninnum með þessu gríðarlega efnilega tæki. iGrill er steikarhitamælir sem tengir þig við iPhone-inn þinn með Bluetooth tækni. Nú geturðu minglað við gestina og bíður bara eftir skilaboðum í símann.

Nú verður enn meira gaman að [...]

Keyrðu með símann í stýrinu

Klemman góða

Flottustu bílaframleiðendur í heimi hafa verið að rembast við að setja upplýsingar inní framrúðuna svo ökumenn þurfi ekki að taka augun af veginum. Nú er hægt að fá þess klemmu fyrir lítið fé. Hún kemur kannski ekki í veg fyrir það að ökumenn taki augun af veginum en er sniðugt engu að síður þar sem flest GPS tæki eru hvort sem er til hliðar við sjónlínuna. Allavega er þetta ekki verri uppfinning en margar af þeim þúsundum farsíma aukahluta sem eru á markaðnum. Þetta virkar fyrir iPhone og Android síma sem og fleiri.

Klemman komin í stýrið

Lesa meira af Keyrðu með símann í stýrinu

iSíminn settur í gamla stílinn

iPhone dokka með tóli

Desk Phone Dock kemur á markaðinn í næsta mánuði. Þetta er klárlega ekki þessi venjulegi aukabúnaður en þetta er annars bara venjuleg dokka. Þú hleður símann og tengir hann við tölvuna og getur svo tekið símtöl “á gamla mátann”.

Reyndar er þetta líka handfrjáls búnaður og einnig er hægt að nota hátalarann til að [...]

4G prófað í Svíþjóð

4G pungurinn

4G pungurinn

Norræna símafyrirtækið Telia hefur sett upp 4G senda á völdum stöðum á Norðurlöndunum. Nú hafa verið gerðar prófanir af sænska tækniblaðinu M3 og niðurstöðurnar eru þær að loksins er hægt að kalla fyrirbærið “þráðlaust breiðband”. Takmarkið er að hraðinn verði 100Mbit/sek en enn sem komið er eru engir símar í almennri [...]

Loksins hægt að fá almennilegan síma!!!

Porsche Design hefur sent frá sér verulega flottan GSM síma. Þessi er skorinn útúr álklumpi og er með 2,8 tommu rispufríum OLED snertiskjá. Myndavélin er 5 megapixel og það er auðvitað GPS og Wi-Fi um borð. Einnig er fingrafaraskanni í honum til að enginn sé að fikta í græjunni þinni nema þú.

Gripurinn [...]

Blaðsíða 1 af 612345...Síðasta »