Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

4G prófað í Svíþjóð

4G pungurinn

4G pungurinn

Norræna símafyrirtækið Telia hefur sett upp 4G senda á völdum stöðum á Norðurlöndunum. Nú hafa verið gerðar prófanir af sænska tækniblaðinu M3 og niðurstöðurnar eru þær að loksins er hægt að kalla fyrirbærið “þráðlaust breiðband”. Takmarkið er að hraðinn verði 100Mbit/sek en enn sem komið er eru engir símar í almennri [...]

iPhone prófaður á Íslandi

iphone2

iPhone var formlega kynntur til sögunnar í janúar síðastliðnum á Macworld sýningunni í San Fransisco eftir að hafa verið slúðrað um hann í 3 ár. Slúðrið hélt áfram og óhætt er að segja að yfirstaðin er einhver magnaðasta markaðssetning seinni ára. 270.000 stykki seldust fyrsta sólarhringinn í USA í lok júní og síminn er væntanlegur útfyrir Bandaríkin á næstu vikum.

Við hjá Hlutir.is erum búnir að vera með iPhone í notkun núna í heila viku. Síminn var prófaður fram og til baka og til að gera langa sögu stutta þá er niðurstaðan: frábær græja.

iPhone er gjörsamlega eins og hugur manns. Notendaviðmótið er frábært og eiginlega betra en maður þorði að vona þrátt fyrir allt hæpið í kringum hann fyrir útgáfu. Þó svo síminn sé tveimur kynslóðum á undan öðrum lófatölvum þá er maður fljótur að auka kröfurnar og finnur strax nokkra “galla” sem má laga. Nánar að því síðar.

Síminn sjálfur

Síminn er 115 mm x 61 mm x 11,6 mm og vegur um 135 grömm. Smíði hans er einhver sú fallegasta á raftæki sem maður hefur séð. Glæsilegur frágangur, efni og útlit.
Innbyggt minni er 8Gb (einnig hægt að fá 4 GBb og er hann með Li-Ion batteríi. í honum er Quad band, GPRS, EDGE, Bluetooth, WiFi (með VPN möguleika), Java, Safari vafri, YouTube spilari, iPod, Mail tölvupóstur, reiknivél, dagatal, myndasafn, myndavél, Google earth landakort (veftengt) og Fjöltóna- og rauntónahringing ásamt nokkrum smærri forritum. Skjárinn er snertiskjár og upplausnin er 160punktar á hverja tommu. 3,5 tommur horn í horn og upplausin er 480×320.

Uppsetning:

Ágætlega gekk að setja upp símann, það tók rétt rúma klukkustund að opna (hakka) hann og var farið eftir leiðbeiningum á nokkrum vefsíðum (firmware 1.0.2). Síminn var syncaður í gegnum iTunes 7.4.1 og komu allir contactar, dagatal og bookmarks inn eins og skot.
Notast var við PowerBook með 1ghz örgjörva og USB 1 porti. Í póstinum voru 4 IMAP accountar og komu þeir einnig inn. Pósturinn var stilltur þannig að hann tékkar á pósti á 30 mínútna fresti (þú velur milli 15, 30 eða 60 mín) og notar hann WiFi ef það er til staðar en annars notar hann EDGE.

Setja þarf inn lykilorðið á þráðlausa netið og stilla APN-ið í GPRS-inu (gprs.is hjá Vodafone).

Sniðugt væri ef hljóðið sem kemur þegar nýr email kemur komi bara milli 08 og 22 á daginn !!

Síminn kom hlaðinn að hluta en annars er hann hlaðinn með USB snúru annaðhvort í gegnum tölvutenginu eða beint í spennubreyti sem fylgdi með. Batteríið dugaði nú ekki lengi fyrstu dagana, enda verið að nota símann nánast stanslaust allan daginn ;) Nú er batteríið farið að duga í 2 daga.
Lesa meira af iPhone prófaður á Íslandi

Blackberry 8700v prófaður

Hlutir.is fengu um daginn Blackberry Pearl 8700v til prófunar. Tækið var prófað með ” BlackBerry Internet Service (BIS) sem er fyrir einstaklinga, einyrkja og minni fyrirtæki sem reka ekki eigin póstþjón, hafa fáa notendur eða þurfa einfaldlega ekki annað.
BIS veitir aðgang að tölvupósti, tengiliðalista, dagbók, aðgerðarlista og verkefnalista. Tölvupóstur berst í tækið á 15 mínútna fresti og símtækið lætur þig vita ef nýr póstur er í hólfinu með rauðu ljósi.” eins og segir á heimasíðu Vodafone.

Síminn sjálfur

8700Síminn er 110mm x 69,5mm x 19,5mm og vegur um 134gr. Innbyggt minni er 64mb og er hann með Li-Ion batteríi. í honum er Quad band, GPRS, EDGE, Bluetooth, USB tengi, MMS, Java, Vafri, Fjöltóna- og rauntónahringing.

Uppsetning:

Ágætlega gekk að setja upp símann, við settum upp tölvupóstinn í versluninni áður en hann var afhentur og virkar hann ágætega. Pósturinn er sóttur á 15 mínútna fresti og hægt er að stilla hvort það komi hljóð, víbringur eða ljós þegar nýr póstur kemur.
Þemað á valmyndum (theme) var nokkuð flatt og leiðinlegt í upphafi þannig að valið var að nota BB-Dimenson-icon sem var talsvert flottara.

Síminn er hlaðinn með hleðslutæki sem er stungið í USB raufina. Einnig hleðst hann þegar verið er að synca með USB snúrunni. Batteríið dugar í 4-6 daga.
Lesa meira af Blackberry 8700v prófaður