Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

LG kynnir næstu kynslóð fartölva

Fartölvur hafa verið nánast óbreyttar síðan á níunda áratug síðustu aldar. Jú, auðvitað hefur hraðinn og afkastagetan aukist en hönnunin er nánast eins. LG hefur hannað algjörlega nýja fartölvu. OLED skjár er notaður í staðinn fyrir LCD skjáinn sem allir nota í dag, og er enginn rammi í kringum hann. Einnig er sagt að [...]

Lagageymsla fyrir iPod

Bandaríska fyrirtækið Buffalo hefur sett á markað sniðugan flakkara. Munurinn á þessum flakkara og öðrum er að hann er með innbyggðum vefþjón fyrir iTunes lög (eða venjuleg mp3 lög). Hægt er að fá flakkarann með 250, 320 og 500 GB diskum og það eru auðvitað hægt að nota hann í geyma allt hitt stöffið [...]

Önnur kynslóð lyklaborða

Lyklaborð í tölvum hafa tekið litlum framförum á undanförnum áratugum. Jú, takkarnir eru orðnir þægilegri og hægt er að fá þráðlaus lyklaborð og eitt og annað. Þann 12.desember n.k. mun rússneskt lyklaborð koma á markað sem er byltingakennt. Hver einasti hnappur á borðinu er LCD litaskjár og gefur þetta gríðarlega möguleika. Lyklaborðið er þráðlaust og virkar á Mac og PC tölvur en aðrar upplýsingar eru enn á huldu.

Keyboard

Lyklaborðið lítur sakleysislega út úr fjarlægð

k2

Hver takki er þó glæsilegur og breytilegur

Lesa meira af Önnur kynslóð lyklaborða

Geisladiskatætari

Pappírstætarar eru orðnir staðalbúnaður á skrifstofum í dag. En eins og allir vita geta geisladiskar innihaldið gríðarlega mikilvægar upplýsingar sem ekki mega leka út. Fyrirtækið Elecom hefur sett á markað tæki sem rispar geisladiska svo mikið að algjörlega ómögulegt er að lesa á þá á eftir. Tækið er tengt við USB tengi á tölvunni [...]

Hver man öll lykilorðin sín?

Nú er komin lausn fyrir okkur sem geta ekki munað öll lykilorðin sín. Tækið er lítið sem mús og tengt með USB við tölvuna. Þegar maður er á síðu sem biður um lykilorð, setur maður bara puttann á tækið og slær svo inn lykilorðið. Næst þegar þú ferð á síðuna en nóg að setja [...]

Blaðsíða 5 af 512345