Þeir sem eru orðnir þrítugir ættu að muna eftir Commodore 64 sem var uppá sitt besta á níunda áratug síðustu aldar.
Velgengnin var þvílík að þetta er söluhæsta tölva í heiminum enn þann dag í dag (sama vörunúmer). Það seldust um 17 milljón eintök frá 1982 til 1994.Nú ætla þeir að koma sterkir tilbaka og kynna leikja PC vél sem á að vera það besta sem hægt er að finna fyrir leikjaspilara. Kynningin verður á CeBIT sýningunni 15 mars n.k. og er óhætt að segja að spennan sé farin að magnast….
http://commodoregaming.com/
Nokkrar upplýsingar um C64:
Örgjörvinn var MOS Technology 6510 og var hraðinn 0.99 MHz. Vinnsluminnið var 64-KB. Um 10.000 forrit voru seld fyrir C64, bæði skrifstofutól og leikir. Hægt var að tengja tölvuna beint við sjónvarp og flestir leikir voru spilaðir af kassettum.
Lesa meira af Endurkoma Commodore á tölvumarkaðinn
Síðustu komment