Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Armbandssími

Nú eru allir hreinlega að veðja á símasölu. Kóreska fyrirtækið Hyundai sem er heimþekkt fyrir glæsilega sportbíla og gámflutningaskip er komið í símabransann. Nýji síminn heitir Hyundai W-100 og er með 1,3 megapixla myndavél, 176 x 144 snertiskjá, Bluetooth, Ensku og kínversku stýrikerfi, MP3 spilara og rauf fyrir microSD kort. Nú bíðum við bara eftir verðinu.

w100

Lesa meira af Armbandssími

iPhone prófaður á Íslandi

iphone2

iPhone var formlega kynntur til sögunnar í janúar síðastliðnum á Macworld sýningunni í San Fransisco eftir að hafa verið slúðrað um hann í 3 ár. Slúðrið hélt áfram og óhætt er að segja að yfirstaðin er einhver magnaðasta markaðssetning seinni ára. 270.000 stykki seldust fyrsta sólarhringinn í USA í lok júní og síminn er væntanlegur útfyrir Bandaríkin á næstu vikum.

Við hjá Hlutir.is erum búnir að vera með iPhone í notkun núna í heila viku. Síminn var prófaður fram og til baka og til að gera langa sögu stutta þá er niðurstaðan: frábær græja.

iPhone er gjörsamlega eins og hugur manns. Notendaviðmótið er frábært og eiginlega betra en maður þorði að vona þrátt fyrir allt hæpið í kringum hann fyrir útgáfu. Þó svo síminn sé tveimur kynslóðum á undan öðrum lófatölvum þá er maður fljótur að auka kröfurnar og finnur strax nokkra “galla” sem má laga. Nánar að því síðar.

Síminn sjálfur

Síminn er 115 mm x 61 mm x 11,6 mm og vegur um 135 grömm. Smíði hans er einhver sú fallegasta á raftæki sem maður hefur séð. Glæsilegur frágangur, efni og útlit.
Innbyggt minni er 8Gb (einnig hægt að fá 4 GBb og er hann með Li-Ion batteríi. í honum er Quad band, GPRS, EDGE, Bluetooth, WiFi (með VPN möguleika), Java, Safari vafri, YouTube spilari, iPod, Mail tölvupóstur, reiknivél, dagatal, myndasafn, myndavél, Google earth landakort (veftengt) og Fjöltóna- og rauntónahringing ásamt nokkrum smærri forritum. Skjárinn er snertiskjár og upplausnin er 160punktar á hverja tommu. 3,5 tommur horn í horn og upplausin er 480×320.

Uppsetning:

Ágætlega gekk að setja upp símann, það tók rétt rúma klukkustund að opna (hakka) hann og var farið eftir leiðbeiningum á nokkrum vefsíðum (firmware 1.0.2). Síminn var syncaður í gegnum iTunes 7.4.1 og komu allir contactar, dagatal og bookmarks inn eins og skot.
Notast var við PowerBook með 1ghz örgjörva og USB 1 porti. Í póstinum voru 4 IMAP accountar og komu þeir einnig inn. Pósturinn var stilltur þannig að hann tékkar á pósti á 30 mínútna fresti (þú velur milli 15, 30 eða 60 mín) og notar hann WiFi ef það er til staðar en annars notar hann EDGE.

Setja þarf inn lykilorðið á þráðlausa netið og stilla APN-ið í GPRS-inu (gprs.is hjá Vodafone).

Sniðugt væri ef hljóðið sem kemur þegar nýr email kemur komi bara milli 08 og 22 á daginn !!

Síminn kom hlaðinn að hluta en annars er hann hlaðinn með USB snúru annaðhvort í gegnum tölvutenginu eða beint í spennubreyti sem fylgdi með. Batteríið dugaði nú ekki lengi fyrstu dagana, enda verið að nota símann nánast stanslaust allan daginn ;) Nú er batteríið farið að duga í 2 daga.
Lesa meira af iPhone prófaður á Íslandi

Sony kynnir nýja spólulausa myndavél

Sony hefur gefið út upplýsingar um nýja videomyndavél sem er ætluð fyrir áhugamenn sem setja miklar kröfur (prosumer). Þetta er spólulaus MPEG-2 myndavél sem tekur myndir á 3 stykki af 1,1cm flögum. Myndirnar eru settar á tvo 16GB SxS flash Express kort þannig að hægt er að ná 120 mínútum af háskerpu efni. Hægt er að velja á milli 1080/60i og 720/60p.

Ekki eru enn komið verð á gripinn en áætlað er að hún verði sett á markað seinna á árinu 2007.

sonyvideovel

Lesa meira af Sony kynnir nýja spólulausa myndavél

Sanyo með H.264 myndbandsupptökuvél

H.264 þjöppunarstaðallinn sem t.d. Apple notar í iTunes er að verða vinsæll. Sanyo var að kynna nýja upptökuvél sem tekur upp beint á þetta form á harðan disk eða kort. Xacti CG65 heitir vélin og er með byssu-gripi og nýjum örgjörva sem heitir Pure Fourth III. Einnig eru í vélinni stöðugleikavörn og 6 megapixel [...]

Fyrsta WiFi myndavélin frá Sony

Nýjasta myndavéin frá Sony er með þráðlausu WiFi korti þannig að hægt er að taka af henni myndirnar inní tölvuna þráðlasut. Nokkrir framleiðendur hafa nú þegar sett slíka vél á markaðinn en þetta er sú fyrsta frá Sony. Vélin heitir Cyber-shot DSC-G1 og er 6 megapixel og tengist með 802.11 b og g.

Vélin [...]

Öngulmyndavél

Ef þú vilt geta sannað söguna um “þann stóra” er komið tæki fyrir þig. Öngulmyndavél sem tekur uppá DVD disk. Kostar ekki nema 25 þúsund kall í Englandi.

Blaðsíða 2 af 3123