Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Flottur sími frá Samsung

Nýjungarnar streyma frá raftækjarisanum Samsung í Kóreu. Það nýjasta á Evrópumarkaði er GSM sími á stærð við þumalputta á fullorðnum karlmanni. Síminn er flott hannaður og opnast með snúningi. Síminn er með mp3 spilara og 1gb flash minni sem heldur um 250 lögum.
Eini gallinn er að maður þarf að venjast því að senda SMS þar sem tökkunum er raðað upp á nýjan hátt!!

Samsung1

Smellið hér til að sjá fleiri myndir

Lesa meira af Flottur sími frá Samsung

Meira af flottum græjum frá Bose

Þetta lítur út fyrir að vera glæsilegt eyrnakonfekt frá Bose. Þau heita TriPort IE og koma í búiðir í dag. Þau eru einstök að því leitinu að þau eru að hluta til opin í gegn þannig að síður ætti að myndast þrýstingur í eyranu og því minni líkur á hausverk oþh.

Þrjár stærðir af [...]

Headphones frá Bose

Komin eru á markaðinn ný heyrnartól frá Bose sem ætti að kæta iPod notendur og aðra. Bose hefur verið þekkt fyrir góðan hljóm þannig að við væntum mikils af þessari græju. Hún kallast TriPort OE headphones og kemur meðal annars með 2 snúrum 40cm og 105cm. Tólin kosta 139 dollara í Bandaríkjunum. [...]

Auðvelt að týna þessum

Þá er líklega minnsti farsími í heimi kominn á markaðinn. Hann heitir Pantech C300 og er með snertiskjá, MP3 spilara  121 mb í minni og USB tengi. 55 grömm og 6,7 centimetrar. Er þetta ekki það sem koma skal?

Nýr spilari frá Acer

Acer hefur komið með slatta af nýjungum uppá síðkastið. Nýlega kom á markaðinn frá þeim spilarinn MP-340 og nú hefur sést til nýrrar græju frá þeim sem kallast MP-400. Tækið virðist nokkuð flott  og er á því 3,5″ skjár og það spilar MP3, WMA, DivX, og MPEG-2/4, á því er SD rauf og AV [...]

Blaðsíða 6 af 6« Fyrsta...23456