Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

iPod í góðri gæslu

Spurning hvort maður hafi eitthvað við stálhlíf utanum iPodinn sinn að gera? Allavega datt Japönunum í Shimura í hug að framleiða svona flott hlíf fyrir nýja iPod nano-inn. Hlífin kostar um 10 þúsund kall í Japan og þykir það nokkuð mikið.

Apple hannar mælaborð í bíl

Volkswagen kynnti í vikunni nýjan bíl á bílasýningunni í Los Angeles. Það er ekki frásögum færandi nema hvað Apple hefur hannað mælaborðið og útvarpið í bílinn í samvinnu við VW. Útvarpið er sem sagt 7″ snertiskjár með nokkurs konar CoverFlow og þaðan er einnig stjórnað miðstöðinni og þessum helstu hlutum bílsins. Skipt er á milli laga alveg eins og á iPod touch og svo sést myndin af plötuumslaginu í mælaborðinu einnig.

Flott framtak hjá Apple en þeir hefðu nú getað byrjað á einhverri annari bílategund en þessum VW Space UP! (upphrópunarmerkið eru hluti af nafni bílsins!)

space 2

Fleiri myndir….

Lesa meira af Apple hannar mælaborð í bíl

Gæði ofar magni

Nýji MP3 spilarinn frá Bang & Olufsen tekur aðeins 1000 lög (4GB) en þeir lofa að hljómgæðin séu meira virði heldur en magnið. Batteríið dugar í 40 klst spilun.

Spilarinn er hannaður af Steffen Schmelling og auðvitað úr hágæða efnum, t.d. stainless stál í grindinni, háglansandi svart lakk og rispufrítt gler yfir skjánum. Gúmmí er í tökkunum. Flott leðurhulstur fylgir með spilaranum.

Verð í USA er $600 eða um 36.000 krónur. B&O er velkomið að senda einn spilara á hlutir.is í prófun :)

beosound63

Lesa meira af Gæði ofar magni

Fallegt málefni

Zune spilarinn er nú til í takmarkaðri útgáfu. Spilarinn er bleikur og fer allt söluverðið í góðgerðarmál. Jebb, allt söluverðið. Microsoft ætlar með þessu að styrkja Susan G. Komen sjóðinn sem leitar að lausn við brjóstakrabbameini í konum. Málefnið er vissulega gott og fallegt og gjafmildi Microsoft manna er mikið, en mikið er spilarinn [...]

Armbandssími

Nú eru allir hreinlega að veðja á símasölu. Kóreska fyrirtækið Hyundai sem er heimþekkt fyrir glæsilega sportbíla og gámflutningaskip er komið í símabransann. Nýji síminn heitir Hyundai W-100 og er með 1,3 megapixla myndavél, 176 x 144 snertiskjá, Bluetooth, Ensku og kínversku stýrikerfi, MP3 spilara og rauf fyrir microSD kort. Nú bíðum við bara eftir verðinu.

w100

Lesa meira af Armbandssími

iPhone prófaður á Íslandi

iphone2

iPhone var formlega kynntur til sögunnar í janúar síðastliðnum á Macworld sýningunni í San Fransisco eftir að hafa verið slúðrað um hann í 3 ár. Slúðrið hélt áfram og óhætt er að segja að yfirstaðin er einhver magnaðasta markaðssetning seinni ára. 270.000 stykki seldust fyrsta sólarhringinn í USA í lok júní og síminn er væntanlegur útfyrir Bandaríkin á næstu vikum.

Við hjá Hlutir.is erum búnir að vera með iPhone í notkun núna í heila viku. Síminn var prófaður fram og til baka og til að gera langa sögu stutta þá er niðurstaðan: frábær græja.

iPhone er gjörsamlega eins og hugur manns. Notendaviðmótið er frábært og eiginlega betra en maður þorði að vona þrátt fyrir allt hæpið í kringum hann fyrir útgáfu. Þó svo síminn sé tveimur kynslóðum á undan öðrum lófatölvum þá er maður fljótur að auka kröfurnar og finnur strax nokkra “galla” sem má laga. Nánar að því síðar.

Síminn sjálfur

Síminn er 115 mm x 61 mm x 11,6 mm og vegur um 135 grömm. Smíði hans er einhver sú fallegasta á raftæki sem maður hefur séð. Glæsilegur frágangur, efni og útlit.
Innbyggt minni er 8Gb (einnig hægt að fá 4 GBb og er hann með Li-Ion batteríi. í honum er Quad band, GPRS, EDGE, Bluetooth, WiFi (með VPN möguleika), Java, Safari vafri, YouTube spilari, iPod, Mail tölvupóstur, reiknivél, dagatal, myndasafn, myndavél, Google earth landakort (veftengt) og Fjöltóna- og rauntónahringing ásamt nokkrum smærri forritum. Skjárinn er snertiskjár og upplausnin er 160punktar á hverja tommu. 3,5 tommur horn í horn og upplausin er 480×320.

Uppsetning:

Ágætlega gekk að setja upp símann, það tók rétt rúma klukkustund að opna (hakka) hann og var farið eftir leiðbeiningum á nokkrum vefsíðum (firmware 1.0.2). Síminn var syncaður í gegnum iTunes 7.4.1 og komu allir contactar, dagatal og bookmarks inn eins og skot.
Notast var við PowerBook með 1ghz örgjörva og USB 1 porti. Í póstinum voru 4 IMAP accountar og komu þeir einnig inn. Pósturinn var stilltur þannig að hann tékkar á pósti á 30 mínútna fresti (þú velur milli 15, 30 eða 60 mín) og notar hann WiFi ef það er til staðar en annars notar hann EDGE.

Setja þarf inn lykilorðið á þráðlausa netið og stilla APN-ið í GPRS-inu (gprs.is hjá Vodafone).

Sniðugt væri ef hljóðið sem kemur þegar nýr email kemur komi bara milli 08 og 22 á daginn !!

Síminn kom hlaðinn að hluta en annars er hann hlaðinn með USB snúru annaðhvort í gegnum tölvutenginu eða beint í spennubreyti sem fylgdi með. Batteríið dugaði nú ekki lengi fyrstu dagana, enda verið að nota símann nánast stanslaust allan daginn ;) Nú er batteríið farið að duga í 2 daga.
Lesa meira af iPhone prófaður á Íslandi

Blaðsíða 2 af 612345...Síðasta »