Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Svölustu heyrnatól í heimi

Með byssukúlur í eyrunum!

Það er varla hægt að hugsa sér svalari heyrnatól. Þau eru gerð úr 18 karata gulli og líta út sem 9mm skothylki. Þau eru ekki bara ótrúlega flott heldur er víst hljómurinn í þeim alveg frábær.

Snúran er úr kevlar og er hljóðnemi á henni. 3,5mm tengið er húðað með 24k gulli.

Þráðlaus heyrnatól

earPod

Nú þegar nýji iPod shuffle-inn er orðinn svona rosalega lítill er hægt að fara út að trimma án þess að flækjast of mikið í snúrunni. Hann er einfaldlega festur á eyrað.

Fyrirtækið sem framleiðir heyrnatólin heitir Elecom og heyrnartólin heita  Actrail. Þau fást í hvítu og bleiku og eru aðeins til í Japan um [...]

Draumur iðnaðarmannsins

Stanley útvarp

Stanley hefur sett á markað alvöru iðnaðarmannagræju. Alvöru kraftmikil hljómflutningstæki með útvarpi, iPod stöð, USB og SD tengi. Einnig er úttak fyrir 12 volta sígrettukveikjaratengi, 5 stk USB hleðslutengi og fleira.

Stanley útvarp

Eyrnatækjahaldari

Hversu þreytandi er það að sækja eyrnatækin sín í vasann þegar þau eru öll flækt og snúin. Nú er bara málið að taka kaupa sér svona uglu sem er dulbúin sem eyrnatækjahaldari. Nánast frítt, aðeins %5 hér.

Plan B er að föndra þetta sjálfur heima, smá spýta, sög og bor ættu að redda þessu.

[...]

Man einhver eftir ZUNE?

Zune er tónlistarspilari frá Microsoft sem átti að keppa á móti iPod. Það hefur nú ekki gengið vel hingað til en enn reyna þeir, því nóg eiga þeir af peningum til að ausa í þetta. Þessi mynd er líklega af nýjasta afbrigðinu, sem sagt eftirhermu af iPod touch. Nánari upplýsingar eru ekki komnar í [...]

Loksins hægt að fá almennilegan síma!!!

Porsche Design hefur sent frá sér verulega flottan GSM síma. Þessi er skorinn útúr álklumpi og er með 2,8 tommu rispufríum OLED snertiskjá. Myndavélin er 5 megapixel og það er auðvitað GPS og Wi-Fi um borð. Einnig er fingrafaraskanni í honum til að enginn sé að fikta í græjunni þinni nema þú.

Gripurinn [...]

Blaðsíða 1 af 612345...Síðasta »