Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Færiband í sandinn

sand-x-bike-2Að svissneskt fyrirtæki skuli smíða faratæki fyrir eyðimörk er nóg til að fá mann til að efast. En skyldi þetta farartæki vera eins skemmtilegt og þeir segja? Hröðunin á að vera frá 0 -100 km/klst á 2,8 sek og eiginleikarnir alveg frábærir. Þetta kemst svo 350 km á einum tanki af bansíni. Menn verða bara að dæma af myndunum…

Fleiri myndir og JúTúb fyrir neðan.. Lesa meira af Færiband í sandinn

Umhverfisvænn Harely

Loksins er komin lausn fyrir okkur sem vildum ekki kaupa okkur Harley-Davidsson því þeir voru ekki nógu umhverfisvænir.

Þetta hjól heitir Tequila Sunrise og er gert úr koltrefjum af Jason Batters Design.

Tequila sunrise

Fellihýsi eða kerra…. eða bæði?

Fyrirbærið er einhversstaðar mitt á milli þess að vera fellihýsi og kerra. Þetta er sem sagt fjölnotakerra sem ætti að henta vel fyrir meðalmótorhjólamanninn. Hægt er að draga 2 motocrosshjól eða 1 fjórhjól og svo smella upp tjaldinu og leggja sig fram að næsta moto-i. Einnig væri hægt að nota hana til að keyra heim þvottavélina sem mamma var að kaupa.

Vagninn er um 360 kíló og er tjaldið geymt í vatnsheldu hólfi fremst á kerrunni. Stillingarnar eru nánast endalausar eftir því hvort þú vilt draga mótorhjól, reiðhjól, kajak eða hvað sem er annað.

Vagninn hefur hlotið margar viðurkenningar og verðlaun fyrir góða og gagnlega hönnun.

Lesa meira af Fellihýsi eða kerra…. eða bæði?

Nýtt lögguhjól

Bandrískt fyrirtækið T3 Motion kynnti á dögunum nýtt lögguhjól eða löggufarartæki. Tækið er þriggja hjóla rafmagnstæki sem kemst í 30 km hraða og eyðir rafmagni fyrir 10 krónur á dag!!

Tækið kostar bara rúman 500.000 kall þannig að má búast við að mæta öryggisvörðunum í Smáralind á svona græju fyrir jólin.

logga1

Lesa meira af Nýtt lögguhjól

Fleiri þríhjól

Stundum koma hlutirnir nokkrir í einu. Tvö önnur þríhjól hafa verið kynnt nú stuttu eftir að hjólið hér á undan hjól var kynnt. Þetta eru hjólin Silence PT2 og VentureOne.

Þau eru kannski með aðra hugsun að leiðarljósi. Þau eru bæði “umhverfisvæn”.

Silence PT2 er þriggja hjóla rafmagnsfarartæki. Reyndar nokkuð flott græja, með háglansandi [...]

Flott pæling í þríhjóli

Flest þríhjól hafa hingað til haft eitt dekk að framan og tvö að aftan en bandaríski framleiðandinn Can-Am hefur kynnt nýja hönnun til sögunnar. Þetta hjól kalla þeir Spyder og segja þeir það stöðugra og skemmtilegra en fyrrnefnd hönnun. Hjólið er með 106 hestafla Rotax mótor sem er 990cc V-twin. Hægt er að velja [...]

Blaðsíða 2 af 3123