Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Steve Jobs 1955-2011

sjobs

Stöðugar iPhone bíómyndir

Vertu stöðugur

Kvikmyndavélin í iPhone 4 er glettilega góð. Nú er komin á markaðinn “The Steadicam Smoothee” sem er sérstaklega hönnuð stöðugleikagræja fyrir iPhone 4. Notast er við sömu tækni og í stórum myndavélum atvinnumanna en hún gerir þér kleift að taka upp myndbönd af hlutum á hreyfingu án þess að mikill hristingur verði í upptökunni. [...]

iPad 2 kynntur í dag

iPad 2

iPad 2 fæst nú í hvítu og svörtu

Það er óhætt að segja að iPad hafi slegið í gegn þegar hann kom á markaðinn fyrir um ári síðan. Í dag kynnti Steve Jobs 2011 árgerðina af pöddunni sem kallast iPad 2. Meðal nýjunga er nýr örgjörvi sem kallast A5 en hann er dual [...]

Nýjar atvinnu Mac bækur

Apple tilkynnti í gær nýja árgerð af MacBook Pro fartölvulínunni sinni. Flest allt innvolsið er uppfært með hraðari og betri hlutum en það sem vekur mesta athygli er Thunderbolt. Thunderbolt er ný uppfinning frá Intel sem er tengi/snúru lausn þar sem hraðinn er margfalt meiri en í USB og Firewire snúrum. Annað sem má [...]

Pimpaður Range Rover

iPad með þráðlausu lyklaborði

Þó að þessi Range Rover hafi aðeins verið tekinn í gegn er þetta engin “MTV Pimp my ride” útgáfa. Þetta er alvöru. Þessi hefði örugglega selst í 100 eintökum á Íslandi árið 2007.
Þessi útgáfa kallast Range Rover Autobiography Ultimate Edition og má segja að þetta líkist frekar einkaþotu en bíl. Til að nefna eitthvað þá eru í bílnum 4 körfustólar, 2 iPaddar og kælir á milli aftursætanna.

Bíllinn verður frumsýndur á bílasýningunni í Genf í næsta mánuði. Verðið er ekki komið á hreint.

iPad með þráðlausu lyklaborði

Lesa meira af Pimpaður Range Rover

Blóðþrýstingurinn mældur með iPad

asdf

Svo ýtir maður bara á Start

Fyrir tæpum tveimur árum kynnti Apple möguleikann á að tengja tæki frá þriðja aðila að iOS tækjum. Þeir lögðu einmitt mikla áherslu á að lækningabransinn væri kjörinn í að nýta sér þessa tækni.Einhvern tíma hefur það þó tekið að þróa tæki sem nýtast vel við iPad og iPhone. Uppá síðkastið hefur orðið vart við nokkur slík tæki; nú er hægt að fá upplýsingar úr bíltölvunni sinni í símann, mæla hitann á steikinni í ofninum og nú nýjast er blóðþrýstingurinn mældur í símanum.

Þó að hægt sé að kaupa blóðþrýstingsmæli í næsta Apóteki á 5 þúsund kall er þetta nýja tæki aðeins flottara. Dokkan heitir iHealth og með henni fylgir forrit sem heitir Blood Pressure Monitor. Ferlið er svo sem ekki flókið en fólk sem þarf reglulega að mæla blóðþrýstinginn getur með tækinu sparað sér heimsóknir á læknastöðvar og einnig mælt sig oftar en ella.

Niðurstöðuna úr prófunum er hægt að sjá á grafískan máta og hægt að senda í tölvupósti á lækninn sinn.

Lesa meira af Blóðþrýstingurinn mældur með iPad

Blaðsíða 1 af 612345...Síðasta »