Lambo handa frúnni

 

Lambo skór

Lambo skór

Ef að konan skyldi hafa beðið um Lamborghini í afmælisgjöf og þú hefur tapað nokkrum kúlum í bankahruninu, gætu þessir skór komið sér vel. Reyndar er þetta svona fyndið í 2 mínútur en það myndi engin heilbrigð kona láta sjá sig í þessum skóm á almannafæri.
Verðið er líklega aðeins meira en manni finnst sanngjarnt.

Tappatogari ríka fólksins

Tappatogari sem kostar svipað og nýr Porsche Boxster er ólíklegur til að vera til á hverju heimili. Þessvegna er einmitt svo skemmtilegt að eiga einn.

Togarinn kemur í trékassa sem er mjög vandaður og glæsilegur, maður velur sjálfur viðinn í kassann.Trékassinn er reyndar verndaður af sérsniðinni leðurbrók á meðan flutningum stendur en það er annað mál.

Hluti af togaranum er úr 18 karata gulli sem reyndar er hægt að hafa úr platínu ef maður endilega vill. Svo getur maður fengið aukagull í suma hluti og jafnvel nafnið sitt grafið í tækið.

 cork

 

Nýja Vettan hugguleg

Chevrolet vita ekki almennilega hvar þeir eiga heima á markaðnum. Nú reyna þeir að selja Lanos bíla frá Kóreu og ofursportbíla undir sama nafninu. Nýja vettan er glæsileg bifreið. Svo virðist sem Chevy ætli að ráðast meira á Ferrari og Lamborghini frekar en Viper og Porsche með þessari útgáfu, allavega er gluggi á húddinu svo maður geti skoðað forkælinn sem kælir loftinntakið.
Þessi bíll sem hér sést er ZR1 útgáfan og er með 6,2 lítra V8 vél sem heitir LS9 og er með keflablásara. Hestöflin eru 620 og togið er 595 pund á fetið.

Yfirbyggingin er öll úr koltrefjum og eru 6 bremsudælir við hvort framhjól. 4 bremsudælur eru við hvert afturhjól. Bíllinn kemur á sérhönnuðum Michelin Pilot Sport2 dekkjum og fjöðrunin er stillanleg með tækni sem Chevy kallar Magnetic Ride Control. Í bílnum verður 6 gíra beinskipting og ný tegund af tveggja diska kúplingu svo auðveldara sé að stíga á hana. Líklega verður bíllinn 3,2 sekúndur úr 0 í 100 km/klst og með hámarkshraða uppá 320 km/klst.

Felgurnar á bílnum eru 19 tommur að framan og 20 tommur að aftan P335/25ZR20 !

Búist er við að ZR1 bíllinn kosti um $100k í USA eða hingað kominn á 12.188.494 krónur samkvæmt ShopUSA.is

zr5

Fleiri myndir:

Continue reading

Gæði ofar magni

Nýji MP3 spilarinn frá Bang & Olufsen tekur aðeins 1000 lög (4GB) en þeir lofa að hljómgæðin séu meira virði heldur en magnið. Batteríið dugar í 40 klst spilun.

Spilarinn er hannaður af Steffen Schmelling og auðvitað úr hágæða efnum, t.d. stainless stál í grindinni, háglansandi svart lakk og rispufrítt gler yfir skjánum. Gúmmí er í tökkunum. Flott leðurhulstur fylgir með spilaranum.

Verð í USA er $600 eða um 36.000 krónur. B&O er velkomið að senda einn spilara á hlutir.is í prófun :)

beosound63

Continue reading