Piparsveinar athugið

Svona stóll er nauðsynlegur í hvaða piparsveinaíbúð sem er. Þetta er algjör ísbrjótur í matarboðum og skvísusegull í partíum.

Í stólnum eru 200 metrar af sérstökum vír sem lýsist upp (og þú færð ekki straum). Hægt er að hafa ljósið stöðugt eða blikkandi í takt við tónlistina.

Stóllinn góði

Porsche uppfærir græjurnar sínar

Porsche hefur gefið út myndir af 2011 árgerðunum af 911 og Cayenne. Cayenne jeppinn er mest selda tegundin hjá framleiðandanum og er nú útlitið tekið í gegn. Óhætt er að segja að það sé vel lukkað. Einnig er fréttnæmt þar eru nýjar vélar. Annarsvegar diesel vél og hinsvegar blendingur sem bensín og rafmótorum. Aðrar vélar eru eyðslugrennri en þær voru og Turbo S bíllinn er nú 500 hestöfl. Blendingurinn er með V6 mótor og samtals 333 hestöfl

Nýr Cayenne

Continue reading

Kortahulstur frá BMW

Frá hönnuðum BMW kemur þetta virkilega flotta kortahulstur. Ytri hlutinn er úr leðri og málmi og lokið smellur tilbaka ef ýtt er við því. Einnig er hægt að skila kortinu sínu niður um raufina á lokinu. Kostar bara $31

umbraholden

103 tommu alvöru sjónvarp

Bang og Olufsen hefur sett á markað 103 tommu plasma sjóvarp í DeoVision 4 línunni sinni, þar sem áður voru bara 50 og 65tommu sjónvörp. Þetta er ekki amalegt sjónvarp enda með öllu því flottasta sem B&O hefur uppá að bjóða. Tækið er auðvitað í fullri HD upplausn,  með sjálfvirkri stillingu á litum og birtu (VisionClear), standi sem tjakkar sig upp sjálfkrafa og ýmislegt annað.  Líklegt þykir að hönnunarferlið á þessu skrímsli hafi verið samþykkt þegar Hannes Smárason átti 15% hlut í félaginu og ætlaði að gera það að heimsveldi.

Verðið er aðeins um 20 milljónir króna en fyrir þá upphæð mætti t.d. kaupa

  • 2 herbergja íbúð í Breiðholtinu
  • 1 kíló af kókaíni
  • 7 ágætis bifreiðar að eigin vali

103 tommur

Fyrir neðan er svo smá myndband frá B&O um nýja gripinn.

Continue reading

Klukka eða geimskip?

Þessi klukka er eitthvað það flottasta sem maður hefur séð lengi. Fréttatilkynningin frá framleiðandanum var stútfull af upplýsingum um hvað klukkan væri vel hönnuð úr góðum efnum og gríðarlega nákvæm. Það var svo mikið af flóknum tækniorðum og blaðri að það er best að láta myndirnar bara tala sínu máli. Njótið því myndanna eða smellið hér til að lesa meira um klukkuna og framleiðsluferli hennar.

 

c1-tourbillongravity_1-thumb-450x450-2501

Continue reading

Loksins hægt að fá almennilegan síma!!!

p9522

Porsche Design hefur sent frá sér verulega flottan GSM síma. Þessi er skorinn útúr álklumpi og er með 2,8 tommu rispufríum OLED snertiskjá. Myndavélin er 5 megapixel og það er auðvitað GPS og Wi-Fi um borð. Einnig er fingrafaraskanni í honum til að enginn sé að fikta í græjunni þinni nema þú.

Gripurinn heitir Porsche Design P’9522 og kostar um 150 þúsund kall í Bretlandi.