Ferrari 4

Fyrsta myndin af 4

Ferrari hefur boðað komu fyrsta fjórhjóladrifs bíls þeirra. Bíllinn hefur einnig fjögur sæti. Hann gengur undir nafninu FF (Ferrari fjórir).

Bíllinn kemur til með að leysa af hólmi flaggskip verksmiðjunnar, 612 Scaglietti, og mun verða kynntur formlega á bílasýningunni í Genf.

4 er hnúfubakur (hatchback) með 6,3 lítra V12 vél sem framleiðir 651 hestafl og 504 lb/ft af togi. Hámarkshraði verður 335 km/klst og hröðun frá o til 100 verður 3,7 sek. Notast verður við sama tveggja kúplinga gírkassa og er í 458 Italia og California.

Lúxuskerra frá Maybach

Ef þið hélduð að Mercedes-Benz væri lúxuslínan frá Daimler fyrirtækinu þá er það misskilningur. Toppurinn á ísjakanum hjá þeim heitir Maybach er fyrir þá allra ríkustu.  Alls eru 5 tegundir í boði frá þeim og heildarsalan er innan við 200 bíla á ári. Samkeppnin við Rolls Royce og Bentley er hörð og lísti fyrirtækið því yfir í vikurinni að möguleiki er á að það verði lagt niður á þessu ári.

Það væri ágætt að rúlla um á Maybach Landaulet.

Ágætis jepplingur

Andreas Schwarz er ný tekinn við sem forstjóri hjá Gemballa fyrirtækinu í Þýskalandi. Fyrrum forstjóri fannst látinn fyrir skemmstu í Suður-Afríku og þykir nokkuð ljóst að mafían þar í landi hafi eitthvað skítugt í pokahorninu.

Fyrsti bíllinn sem Andreas sendir frá sér kalla þeir Tornado og er byggður á 2011 árgerðinni af Porsche Cayenne. Boddíið er heimasmíðað úr koltrefjablöndu og er um 70 kg léttara en það venjulega. Svo eru 700 hestar í hesthúsinu og fullt af sniðugu dóti einnig.

Rennilegur þessi

Aðeins 30 eintök verða smíðuð þannig að það borgar sig að vera fljótur að panta.

Continue reading

Vínelskendur athugið

Einhverjum datt í hug að búa til máttlausa borvél til að skrúfa skrúfur. Þetta var frekar aum hugmynd sem þó var hægt að markaðssetja til unglinga til að gefa pabba sínum í jólagjöf. Þúsundir pabba hafa fengið svona græju í jólagjöf (líklega enginn þeirra hefur keypt sér svona sjálfur). Nú geta unglingarnir toppað gjöfina frá því í fyrra og gefið svona sniðuga framlengingu á vélina. Nú má nýta vélina í allavega tveimur matarboðuð svo hún fer nú að vera flokkuð sem gagnleg!

Rafmagns tappatogari

Spilakassi í stofuna heima

Nú er loksins kominn á markað raunverulegur kostur við að fá sér alvöru spilakassa inní stofu. Kassinn er hannaður og smíðaður af Pinel & Pinel og fæst í 51 lit. Í kassanum eru 60 leikir og margir af þeim bestu frá því á níunda áratugnum svo sem PacMan, 1942 og Space Invaders.

Skjárinn er 1080p LCD og hágæða 400w hljómkerfi með bassaboxi er í kassanum sem er leðurklæddur. Kassinn er einnig hleðslustöð fyrir iPhone en flottast væri en hægt væri að spila leikina úr honum, en svo virðist ekki vera.

Verðið byrjar í 1,5 milljón íslenskar kr. og hægt er að fara með það uppúr öllu valdi með því að sérpanta t.d. liti.

Nokkrir af þeim litum sem eru í boði

Svaaaaaka úr

Nú er rétti tíminn til að fjárfesta í framúrstefnulegu úri.

Úrið heitir  Horological Machine No4 Thunderbolt watch og er framleitt af MB&F. Það er handsmíðað úr títan og safír og tekur rúmlega 100 klukkustudir að búa til botninn í því.

Aðeins 20 úr verða framleidd í ár þannig að nú þarf að hlaupa til. Það kostar 21 milljón íslenskar krónur fyrir utan virðisaukaskatt.

Þessu úri verður annars ekkert líst með orðum og því best að skoða nokkrar myndir og video.

MB&F

Continue reading