Forngripur sem leynir á sér

Þeir sem eru komnir yfir þrítugt muna eftir myndavélum sem líta svona út. Nú hefur Fuji sett á markaðinn þessa myndavél sem er dulbúin sem eldgömul filmuvél. Í raun og veru er þetta háþróuð nýtísku myndvél úr magnesíum umgjörð. Vélin heitir FinePix X100 og kemur á markaðinn í vor og mun kosta um $1200 í USA eða nærri 200 þúsund hérlendis.

Ný vél í gömlum umbúðum

Continue reading

Útrásarvíkingaviskí

Leifur Eiríksson hefði líklega viljað hafa eina svona sér við hlið

Fyrsti og eini útrásarvíkingurinn okkar hefur fengið sitt eigin viskí. Leifur Eiríksson er auðvitað okkar fyrsti útrásarvíkingur og án efa sá merkilegasti. Það verður að teljast nokkur heiður á fá fésið á sér á svona eðaldrykk en það versta er að það eru Skotar sem reyna að eigna sér heiðurinn. Í tilkynningu frá framleiðandanum, Highland Park, segir að Leifur hafi verið fyrsti Evrópubúinn til að stíga fæti á Norður-Ameríku og að för hans hafi hafist á Orkneyjum í Skotlandi. Þetta er náttúrulega bara bull og vitleysa því Leifur var íslenskur og með för sinni gerði Leifur Ísland að nafla alheimsins, þar sem það hefur ætíð verið síðan.

Viskíið sem er single-malt og aðeins framleitt í takmörkuðu upplagi verður kynnt á sölusýningu alþjóða fríhafnarverslunarsamtökunum seinna í þessum mánuði. 700ml flaska mun kosta $88 í USA.

Þó svo að mjöðurinn er líklega góður, leggur vefurinn til að Ísland lýsi yfir stríði við Skotland vegna þessara sögufalsana á kostnað Íslands.

Hljóðmúrinn í hættu

Það styttist í það að Koenigsegg rjúfi hljóðmúrinn með nýja Egginu sínu. Nýji bíllinn þeirra heitir Agera R og er með 5 lítra V8 mótor sem notar tvær túrbínur til að framleiða 1115 hestöfl – eitt þúsund eitt hundrað og fimmtán – . Vélið togar einnig 885 pund á fetið. Úff.

Hér eru línurnar í lagi

Heimasíða Koenigsegg

2012 Aston Martin Virage

Nýji Astoninn er nokkuð líkur DB9 en er samt splunkunýr bíll. Hann heitir Virage og er með 6 lítra V12 vél sem skilar 490 hestum. Bremsurnar eru úr koltrefjum og leðrið í sætunum er handsaumað.

Það er eitthvað sérstakt við þessa bíla, þeir verða einhvernveginn fallegri eftir hvað maður starir lengi á myndirnar af þeim.

Virage

Continue reading

Pimpaður Range Rover

Þó að þessi Range Rover hafi aðeins verið tekinn í gegn er þetta engin “MTV Pimp my ride” útgáfa. Þetta er alvöru. Þessi hefði örugglega selst í 100 eintökum á Íslandi árið 2007.
Þessi útgáfa kallast Range Rover Autobiography Ultimate Edition og má segja að þetta líkist frekar einkaþotu en bíl. Til að nefna eitthvað þá eru í bílnum 4 körfustólar, 2 iPaddar og kælir á milli aftursætanna.

Bíllinn verður frumsýndur á bílasýningunni í Genf í næsta mánuði. Verðið er ekki komið á hreint.

iPad með þráðlausu lyklaborði

Continue reading

Breitling með brilliant úr

Nýja úrið frá Breitling heitir Montbrilliant og er brilliant. Það eru aðeins 2000 eintök framleidd af úrinu í ryðfrírri útgáfu og önnur 200 eintök úr rauðagulli. Öll úrin eru númerið og koma með nýju gangverki sem heitir Caliber 01. Annars segir myndin meira en mörg orð.

Breitling Montbrilliant 01 Limited