Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

300GB fartölvudiskur

Þeir stækka með hverjum deginum. Í dag kynnti Fujitsu 300GB harðan disk fyrir fartölvur þ.e. 2,5tommu disk. Þetta gerist aðeins 9 mánuðum eftir að þeir náðu 200GB markinu. Diskurinn ber nafnið MHX2300BT og snýstu 4200 snúninga á mínútu og hefur svörun uppá 1,5ms. Orkunotkun er 1,6w.

Önnur kynslóð lyklaborða

Lyklaborð í tölvum hafa tekið litlum framförum á undanförnum áratugum. Jú, takkarnir eru orðnir þægilegri og hægt er að fá þráðlaus lyklaborð og eitt og annað. Þann 12.desember n.k. mun rússneskt lyklaborð koma á markað sem er byltingakennt. Hver einasti hnappur á borðinu er LCD litaskjár og gefur þetta gríðarlega möguleika. Lyklaborðið er þráðlaust og virkar á Mac og PC tölvur en aðrar upplýsingar eru enn á huldu.

Keyboard

Lyklaborðið lítur sakleysislega út úr fjarlægð

k2

Hver takki er þó glæsilegur og breytilegur

Lesa meira af Önnur kynslóð lyklaborða