Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Aldrei aftur batteríslaus… að deginum til

Bíómyndir í boði allt flugið!

Fyrirtækið Quirky er að koma með nýja útgáfu af sólarknúnu hleðslutæki sem er nokkuð sniðug. Tækið getur hlaðið helstu farsíma en nýjungin við tækið er sogskálin sem er sambyggð. Hægt er að smella tækinu á rúðuna í bílnum eða flugvélinni og halda hleðslunni. Einnig fylgir með venjulegur standur fyrir borð.

Quirky ætlar að byrja [...]

Aðeins raunverulegra að spila Formúlu leiki

Ætli helmingurinn af verðinu fari ekki til Red Bull liðsins?

Tölvuleikir geta verið nokkuð raunverulegir og eru bílaleikir þar mjög framarlega. Þetta sæti mun gera upplifunina enn raunverulegri þar sem þú munt sitja/liggja í stöðu líkt og í Formúlu bíl. Sætið er hannað í samvinnu við Red Bull liðið í Formúlunni

Gallinn er sá að sætið er rándýrt, kostar um 150 þúsund kall í [...]

Spilakassi í stofuna heima

500x_pinel___pinel_arcade_trunk

Nú er loksins kominn á markað raunverulegur kostur við að fá sér alvöru spilakassa inní stofu. Kassinn er hannaður og smíðaður af Pinel & Pinel og fæst í 51 lit. Í kassanum eru 60 leikir og margir af þeim bestu frá því á níunda áratugnum svo sem PacMan, 1942 og Space Invaders.

Skjárinn er [...]

iPad frá Apple

iPad tölvan frá Apple

Apple kynnti í gær nýja tegund af tölvu sem þeir telja að eigi eftir að breyta því hvernig við njótum internetsins. Tölvan kallast iPad og er örþunn og öflug. Hún er með u.þ.b. 10 tommu snertiskjá (24,6 cm) og 10 klst líftíma batterís. Notendaviðmótið er líkt því sem þekkist frá iPhone og iPod touch [...]

PS3 fæst gefins fyrir sigurvegarann í 24 tíma brandarakeppni

Hlutir.is eru búnir að vera með PS3 í prófunum frá Óla í GameTíví í nokkra daga. Við fengum 8 leiki, nokkrar Blue-Ray myndir og allskonar fylgihluti til að prufa. Greinin kemur svo hérna hjá okkur eftir nokkra daga. En við erum búnir að prófa tölvuna og áttum að skila henni, en fengum leyfi til [...]

Endurkoma Commodore á tölvumarkaðinn

Þeir sem eru orðnir þrítugir ættu að muna eftir Commodore 64 sem var uppá sitt besta á níunda áratug síðustu aldar.c64 Velgengnin var þvílík að þetta er söluhæsta tölva í heiminum enn þann dag í dag (sama vörunúmer). Það seldust um 17 milljón eintök frá 1982 til 1994.Nú ætla þeir að koma sterkir tilbaka og kynna leikja PC vél sem á að vera það besta sem hægt er að finna fyrir leikjaspilara. Kynningin verður á CeBIT sýningunni 15 mars n.k. og er óhætt að segja að spennan sé farin að magnast….

http://commodoregaming.com/

Nokkrar upplýsingar um C64:

Örgjörvinn var MOS Technology 6510 og var hraðinn 0.99 MHz. Vinnsluminnið var 64-KB. Um 10.000 forrit voru seld fyrir C64, bæði skrifstofutól og leikir. Hægt var að tengja tölvuna beint við sjónvarp og flestir leikir voru spilaðir af kassettum.

Lesa meira af Endurkoma Commodore á tölvumarkaðinn

Blaðsíða 1 af 212