Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Támús

Maður fer í Támúsina eins og sandala

Í fyrstu virðist þetta alveg fáránleg hugmynd en svo fer maður að hugsa…. Fyrst var þetta hugsað fyrir fólk með einhverskonar fötlun á efri hluta líkamans en svo verður örugglega hægt að víkka þetta eitthvað út, t.d. í skotleiki eða píanóleik.

Maður fer í Támúsina eins og [...]

iPhone tekur upp gítaræfingar

Gítarsnúran sem gerir iPhone-inn að stúdíó

Nú er hægt að fá einfalda snúru til að tengja rafmagnsgítar við iPhone og heyrnatól. Með þessu má segja að örlítið upptökustúdíó hafi verið búið til úr símanum, þetta er allavega kjörið til að taka upp hugmyndir sem skjóta upp kollinum með stuttum fyrirvara. Framleiðandinn hetir PRS Cables og kostar snúran bara $29.

Svo er hægt að fá nokkur forrit sem t.d. duga til að til að stilla strengina, og svo er hægt að spila undir með annari tónlist til að æfa sig.

Gítarsnúran sem gerir iPhone-inn að stúdíó

Lesa meira fyrir myndband

Lesa meira af iPhone tekur upp gítaræfingar

Gibson bjargar okkur frá fölskum tónum

Nú hefur gítarframleiðandinn Gibson loksins komið með sjálfstillandi gítar á markaðinn. Nokkrar hljómsveitir og trúbadorar á þjóðhátíð ættu að hoppa hæð sína af spenningi (sennilega vita þeir þó ekki að þeir séu falskir).
Gítarinn er sem sagt með auka pickup undir strengjunum sem er eingöngu notaður til að stilla gítarana. Flókið tölvukerfi og reikniformúlur eru notaðar til að stilla strengina sjálfkrafa. Gítarinn stillist þó ekki jafnóðum heldur þarf að taka út takkann “Master control” til að stilla græjuna og tekur það aðeins örfáar sekúndur. Einnig er hægt að ákveða hann stilltan aðeins “fyrir utan” ef menn vilja. Þessi aukabúnaður kostar aðeins 58.500 krónur í USA.
gibson1

Lesa meira af Gibson bjargar okkur frá fölskum tónum