Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Óvenjulegur

Þar sem okkur er ekki kunnugt um íslenskt orð yfir alþjóðlega orðið “hybrid” notum við það bara eins það sé íslenskt (sendið endilega inn þýðingu).

Einhver óánægður starfsmaður hefur eytt hugarorku sinni einn daginn í eitthvað þarflegt. Hnúajárn og kaffibolli smellt saman í eitt og sama tækið getur verið eitthvað sem maður þyrfti að nota í eldheitum samræðum á kaffistofunni einn daginn…

kaffibolli

Lesa meira af Óvenjulegur “hybrid”

Fyndið einu sinni

Það væri gaman að mæta með svona græju og slá í gegn hjá fjölskyldunni. Líklega færi tækið samt inní geymslu þann sama dag og svo beint í Sorpu nokkrum árum seinna. Dough-Nu-Matic heitir gripurinn og framleiðir fyrir þig smá-kleinuhringi.

Þú setur deig inn í trektina og út koma gómsætir kleinuhringir sem eru búnir að [...]

Alvöru LCD tæki

Gæðin á LCD og Plasma tækjum geta verið mjög mismunandi. Upplausnin og skerpan er stundum ekkert skárri en í gömlu túbutæki. Samsung hefur sett á markað flott tæki sem er samkeppnishæft í verði. LE46F86BD er vörumerkið, kannski ekki rosalega gott nafn en bíðið bara eftir upptalningunni í innihaldinu.

46 tommur 1920 x 1080 = [...]

Snertifrír krani

Þessi nýji krani frá Miscea er snertifrír og einnig skammtar hann út sápu og sótthreinsandi snertifrítt.  Svo stillir hann einnig hitastigið snertifrítt og hitamælir á miðjum krananum sýnir hversu heitt vatnið er sem úr honum kemur. Tilvalið í næsta heimili.

Aðeins stærri iPod dock

Flestir keppast við að hafa iPod dockina sína sem minnsta en það er kominn tími til að hugsa útfyrir kassann. Þessi AMP dock er í raun líka borð þannig að stofan verður glæsileg á eftir. Auðvitað er magnari inní græjunni og allt tilbúið fyrir iPod eða bara makkann í heild sinni. Nú er bara [...]

Loksins kominn pottur sem ég get sætt mig við

Ég er búinn að bíða eftir heitum potti í nokkur ár. Hef ekki viljað kaupa mér neitt drasl og nú hef ég loksins rekist á almennilega græju. 42 tommu HD plasmi og 74 stútar.

Svo þarf líka að vera svona græja í eldhúsinu hjá mér. Báðar þessar myndir eru ekta. Þetta er ekki gert [...]

Blaðsíða 6 af 11« Fyrsta...45678...Síðasta »