Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Grillaðu með símanum þínum

Nú verður enn meira gaman að elda

iPhone er að taka yfir heiminn smátt og smátt. Nú geturðu fylgst með hvernig steikinni líður í ofninnum með þessu gríðarlega efnilega tæki. iGrill er steikarhitamælir sem tengir þig við iPhone-inn þinn með Bluetooth tækni. Nú geturðu minglað við gestina og bíður bara eftir skilaboðum í símann.

Nú verður enn meira gaman að [...]

Vínelskendur athugið

Rafmagns tappatogari

Einhverjum datt í hug að búa til máttlausa borvél til að skrúfa skrúfur. Þetta var frekar aum hugmynd sem þó var hægt að markaðssetja til unglinga til að gefa pabba sínum í jólagjöf. Þúsundir pabba hafa fengið svona græju í jólagjöf (líklega enginn þeirra hefur keypt sér svona sjálfur). Nú geta unglingarnir toppað gjöfina [...]

Sparaðu tíma og vatn á klóinu

ecourinal

Tekist hefur að hanna pissuskál sem er bæði pissuskál og vaskur í senn. Vatnið sem notað er til að þvo hendurnar eftir þvaglátið er einnig notað til að sturta niður. Þetta þurfum við að fara skoða þegar kalda vatnið hækkar í verði uppúr öllu valdi. Athyglisvert.

Skýringarmynd

Lesa meira af Sparaðu tíma og vatn á klóinu

Ferrari kaffivél

Kaffið kemur með hraði

Þessi snilldar kaffikanna frá Nespresso sem kallast Racepresso er komin í verslanir. Þetta er einfaldlega venjuleg Nespresso kaffikanna sem er vinsælar um allan heim, nema hvað hún lítur út eins og hjálmur merktur Ferrari. Skyldueign á öll Ferrari bílaverkstæði á landinu.

Kaffið kemur með hraði

Fleiri myndir….

Lesa meira af Ferrari kaffivél

Spilakassi í stofuna heima

500x_pinel___pinel_arcade_trunk

Nú er loksins kominn á markað raunverulegur kostur við að fá sér alvöru spilakassa inní stofu. Kassinn er hannaður og smíðaður af Pinel & Pinel og fæst í 51 lit. Í kassanum eru 60 leikir og margir af þeim bestu frá því á níunda áratugnum svo sem PacMan, 1942 og Space Invaders.

Skjárinn er [...]

Piparsveinar athugið

Stóllinn góði

Svona stóll er nauðsynlegur í hvaða piparsveinaíbúð sem er. Þetta er algjör ísbrjótur í matarboðum og skvísusegull í partíum.

Í stólnum eru 200 metrar af sérstökum vír sem lýsist upp (og þú færð ekki straum). Hægt er að hafa ljósið stöðugt eða blikkandi í takt við tónlistina.

Stóllinn [...]

Blaðsíða 2 af 1112345...10...Síðasta »