Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Flottasta brauðristin í bænum

Ýmsu átti maður von á en ekki þessari snilldarhugmynd. ROLLERtoaster heitir fyrirbærið og mætti þýða sem Rúllurist. Jaren Goh frá Singapore hannaði rúlluristina en hún er ekki komin í almenna framleiðslu ennþá. Eitthvað þarf að skoða öryggisþáttinn áður en litlir puttar fá að koma nálægt rúlluristinni í eldhúsinu heima.

Loksins: Skúringaróboti

Loksins er kominn alvöru heimilsgræja sem þörf er fyrir. Steamer heitir gripurinn og er í senn kústur, moppa og skúringavél :D .
Hún ferðast um íbúðina þína á meðan þú ert í vinnunni, fyrst fer hún einn hring til að sópa og ryksuga svo skúrar hún í næsta hring. Hvað er hægt að biðja um meira.
Stærðin er 370*370*150 og batteríið dugir í 2 klst. Fjarstýring fylgir svo með til að breyta stillingum og skipa henni fyrir. Hún kemur ekki markaðinn fyrr en í febrúar 2007 en eitt er víst að hún verður í einhverjum jólapökkum það árið…

moppa1
Lesa meira af Loksins: Skúringaróboti

Blaðsíða 11 af 11« Fyrsta...7891011