Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Barnavagn sem pabbarnir nenna að rölta með

sjáiði mig!

Sumum pöbbum finnst ekkert sérstaklega kúl að láta sjá sig með eldgamlan barnavagn með teinafelgum. Auðvitað er gaman að fara út með litla sólargeislann sinn og nú verður það enn skemmtilegra þegar alvöru græja er komin á heimilið.

Porsche framleiðir ekki bara bíla heldur einnig hin ýmsu tæki eins og sólgleraugu og uppþvottabursta. Allt í hágæðahönnun og gæðum. Nú er sem sagt að koma á markaðinn frá þeim týpan P4911 barnavagn sem er gerður úr koltrefjum, áli, leðri og rúllar um á kúlulegum í hjólunum. Auðvitað smellpassar svo allt í skottið á 911.

Lesa meira af Barnavagn sem pabbarnir nenna að rölta með

Lúmskur lampi

Frægur lampi í tvívídd

Klassísk hönnun með smá nýrri vídd (eða vantar eina vídd? )

Frægur lampi í tvívídd

Skynsamur krani

Ekki bara umhverfisvænn heldur líka flottur

Þessi krani er hannaður af Yanko design með það í huga að spara vatn. Kenningar hönnuðana er að maður þarf aðeins einn lítra að vatni til að þvo sér um hendurnar en meðalmaðurinn noti 6 lítra til þess. Erfitt er að kenna fólki að spara sér þessa 5 lítra svo kraninn er hannaður fyrir þann sem vill spara en getur ekki tamið sig fyrir framan vaskinn (líka hentugt á almenningssalernum).

Kraninn inniheldur sem sagt einn lítra í forðabúrinu og sleppur honum út þegar opnað er fyrir. Forðabúrið fyllist ekki fyrr en að því loknu og þá ættu hendurnar að vera orðnar hreinar og sóunin minni en ella.

Ekki bara umhverfisvænn heldur líka flottur

Lesa meira af Skynsamur krani

Blóðþrýstingurinn mældur með iPad

asdf

Svo ýtir maður bara á Start

Fyrir tæpum tveimur árum kynnti Apple möguleikann á að tengja tæki frá þriðja aðila að iOS tækjum. Þeir lögðu einmitt mikla áherslu á að lækningabransinn væri kjörinn í að nýta sér þessa tækni.Einhvern tíma hefur það þó tekið að þróa tæki sem nýtast vel við iPad og iPhone. Uppá síðkastið hefur orðið vart við nokkur slík tæki; nú er hægt að fá upplýsingar úr bíltölvunni sinni í símann, mæla hitann á steikinni í ofninum og nú nýjast er blóðþrýstingurinn mældur í símanum.

Þó að hægt sé að kaupa blóðþrýstingsmæli í næsta Apóteki á 5 þúsund kall er þetta nýja tæki aðeins flottara. Dokkan heitir iHealth og með henni fylgir forrit sem heitir Blood Pressure Monitor. Ferlið er svo sem ekki flókið en fólk sem þarf reglulega að mæla blóðþrýstinginn getur með tækinu sparað sér heimsóknir á læknastöðvar og einnig mælt sig oftar en ella.

Niðurstöðuna úr prófunum er hægt að sjá á grafískan máta og hægt að senda í tölvupósti á lækninn sinn.

Lesa meira af Blóðþrýstingurinn mældur með iPad

Hringlóttur hnífur

Hringlóttur!

Hringlóttur!

Flott hönnun á þessum hníf, sem er aðallega ætlaður til að skera niður súkkulaði, fersk krydd og grænmeti. Hönnuðirnir heita Paolo Lucidi og Luca Pevere.

Hér er hægt að kaupa hann Chop Round Knife.
Lesa meira af Hringlóttur hnífur

Þráðlaus vog

iPhone appið

iPhone appið

Enn fjölgar í heimilistækjum sem tengjast netinu. Nú er það baðvogin.  Vogin er sem sagt WiFi tengd og með henni fylgir forrit sem þú setur í tölvuna þína og þú getur fylgst með þyngt, fituhlutfalli, vöðvahlutfalli og BMI. Einkaþjálfarinn getur líka fengið aðgangsorð svo hægt sé að fylgjast með. Allavega færð [...]

Blaðsíða 1 af 1112345...10...Síðasta »