Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Blóðsykurmælir tekur við tárum

Blóðsykurmælirinn

Blóðsykurmælirinn

Milljónir manna um allan heim þurfa að stinga sig oft á dag í puttann til að ná í blóðdropa. Ástæðan er sú að þeir sem eru með sykursýki þurfa að mæla blóðsykur og hingað til hefur það aðeins verið gert með blóðdropum. Hönnun stendur yfir á tæki sem mælir blóðsykur útfrá tárum. [...]

Blóðþrýstingurinn mældur með iPad

asdf

Svo ýtir maður bara á Start

Fyrir tæpum tveimur árum kynnti Apple möguleikann á að tengja tæki frá þriðja aðila að iOS tækjum. Þeir lögðu einmitt mikla áherslu á að lækningabransinn væri kjörinn í að nýta sér þessa tækni.Einhvern tíma hefur það þó tekið að þróa tæki sem nýtast vel við iPad og iPhone. Uppá síðkastið hefur orðið vart við nokkur slík tæki; nú er hægt að fá upplýsingar úr bíltölvunni sinni í símann, mæla hitann á steikinni í ofninum og nú nýjast er blóðþrýstingurinn mældur í símanum.

Þó að hægt sé að kaupa blóðþrýstingsmæli í næsta Apóteki á 5 þúsund kall er þetta nýja tæki aðeins flottara. Dokkan heitir iHealth og með henni fylgir forrit sem heitir Blood Pressure Monitor. Ferlið er svo sem ekki flókið en fólk sem þarf reglulega að mæla blóðþrýstinginn getur með tækinu sparað sér heimsóknir á læknastöðvar og einnig mælt sig oftar en ella.

Niðurstöðuna úr prófunum er hægt að sjá á grafískan máta og hægt að senda í tölvupósti á lækninn sinn.

Lesa meira af Blóðþrýstingurinn mældur með iPad