Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Hraðamælir á snjóbretti!

GPS gleraugu

Kanadíska gleraugnafyrirtækið Zeal Optics hefur í samvinnu við Recon Instruments kynnt til sögunnar gleraugu með innbyggðu GPS tæki. Gleraugun eru fyrst og fremst hönnuð fyrir snjóbretta- og skíðafólk en líklega verður boðið uppá útgáfur fyrir aðrar íþróttagreinar og áhugamál, eins og endúró og motocross, innan skamms. Í gleraugunum er sem sagt venjulegt GPS tæki og svo lítill skjár neðst í þeim. Mjög auðvelt að líta niður á skjáinn og má segja að einföldustu upplýsingar, eins og hraði, sjáist alltaf svipað og í “heads up display” í orrustuþotum og dýrum bílum.

Á tækinu eru 3 takkar við gagnaugað þar sem flett er á milli mynda sem í boði eru. Hægt er að fylgjast með hraða, hæð, vegalengd, staðsetningu, hitastigi og tíma á auðveldan máta. Þegar ferðalaginu er lokið eru gleraugun tengd við tölvu með USB snúru og hægt að skoða túrinn myndrænt.

Skjárinn er nógu stór fyrir helstu upplýsingar

Smellið hér fyrir video og frekari upplýsingar
Lesa meira af Hraðamælir á snjóbretti!

Keyrðu með símann í stýrinu

Klemman góða

Flottustu bílaframleiðendur í heimi hafa verið að rembast við að setja upplýsingar inní framrúðuna svo ökumenn þurfi ekki að taka augun af veginum. Nú er hægt að fá þess klemmu fyrir lítið fé. Hún kemur kannski ekki í veg fyrir það að ökumenn taki augun af veginum en er sniðugt engu að síður þar sem flest GPS tæki eru hvort sem er til hliðar við sjónlínuna. Allavega er þetta ekki verri uppfinning en margar af þeim þúsundum farsíma aukahluta sem eru á markaðnum. Þetta virkar fyrir iPhone og Android síma sem og fleiri.

Klemman komin í stýrið

Lesa meira af Keyrðu með símann í stýrinu

Loksins hægt að fá almennilegan síma!!!

Porsche Design hefur sent frá sér verulega flottan GSM síma. Þessi er skorinn útúr álklumpi og er með 2,8 tommu rispufríum OLED snertiskjá. Myndavélin er 5 megapixel og það er auðvitað GPS og Wi-Fi um borð. Einnig er fingrafaraskanni í honum til að enginn sé að fikta í græjunni þinni nema þú.

Gripurinn [...]

GPS tæki með almennilegan harðan disk

GPS leiðsögutækin sem eru á markaðinum í dag eru flest háð rándýrum SD-kortum. Nú er komin á markaðinn tæki sem er laust við þetta vandamál auk þess sem það er flott. Reyndar er spurning hvað það er gáfulegt að horfa á sjónvarpið þegar verið er að keyra um. Tækið heitir “oddi-i 7 STAR” og [...]

Slædkassi

Fyrir 50 þúsund kall er hægt að fá þennan skemmtilega kassa í bílinn. Þetta er tölva og GPS tæki sem mælir allan fjandann. Hún mælir hraða, hröðun, slæd og fullt af skemmtilegu dóti. Þú getur borið saman hraðan hring í braut við Google Earth og lesið úr línunni hjá þér. Einnig geturðu séð hversu [...]

GPS tæki á PSP

Sony í Japan hefur hafið sölu á viðbót við hina geysivinsæla lófa-leikjatölvu PSP. Það er GPS móttakari sem er aðeins um 4,5 cm á stærð og aðeins 16 grömm á þyngd.

Tækið er að sjálfsögðu hágæðaútgáfa af hinum þekktu GPS tækjum eins og við þekkjum þau. Til viðbótar eru komin fyrir Japansmarkað:

Golf-jou: Kort [...]