Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Rómantískir vettlingar

 

Nú þegar veturinn er í hámarki er tilvalið að hugsa um jólagjöf fyrir næstu jól. Það eru svona rómantískir vettlingar sem gerir manni kleyft að fara í rómantískar göngutúr með elskunni sinni næsta vetur. Þeir eru úr flísefni og kosta bara $35 í [...]

Tappatogari ríka fólksins

Tappatogari sem kostar svipað og nýr Porsche Boxster er ólíklegur til að vera til á hverju heimili. Þessvegna er einmitt svo skemmtilegt að eiga einn.

Togarinn kemur í trékassa sem er mjög vandaður og glæsilegur, maður velur sjálfur viðinn í kassann.Trékassinn er reyndar verndaður af sérsniðinni leðurbrók á meðan flutningum stendur en það er [...]

Hvað fékkstu í jólagjöf??

Hlutir.is óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og spyr um leið: Hvað fékkstu í jólagjöf? Þá erum við að tala um hörðu pakkana. Svarið í athugasemdakerfinu…

Nýja Vettan hugguleg

Chevrolet vita ekki almennilega hvar þeir eiga heima á markaðnum. Nú reyna þeir að selja Lanos bíla frá Kóreu og ofursportbíla undir sama nafninu. Nýja vettan er glæsileg bifreið. Svo virðist sem Chevy ætli að ráðast meira á Ferrari og Lamborghini frekar en Viper og Porsche með þessari útgáfu, allavega er gluggi á húddinu svo maður geti skoðað forkælinn sem kælir loftinntakið.
Þessi bíll sem hér sést er ZR1 útgáfan og er með 6,2 lítra V8 vél sem heitir LS9 og er með keflablásara. Hestöflin eru 620 og togið er 595 pund á fetið.

Yfirbyggingin er öll úr koltrefjum og eru 6 bremsudælir við hvort framhjól. 4 bremsudælur eru við hvert afturhjól. Bíllinn kemur á sérhönnuðum Michelin Pilot Sport2 dekkjum og fjöðrunin er stillanleg með tækni sem Chevy kallar Magnetic Ride Control. Í bílnum verður 6 gíra beinskipting og ný tegund af tveggja diska kúplingu svo auðveldara sé að stíga á hana. Líklega verður bíllinn 3,2 sekúndur úr 0 í 100 km/klst og með hámarkshraða uppá 320 km/klst.

Felgurnar á bílnum eru 19 tommur að framan og 20 tommur að aftan P335/25ZR20 !

Búist er við að ZR1 bíllinn kosti um $100k í USA eða hingað kominn á 12.188.494 krónur samkvæmt ShopUSA.is

zr5

Fleiri myndir:

Lesa meira af Nýja Vettan hugguleg

Jólasería skotveiðimannsins

Ætli þetta sé föndrað heima eða er þetta til sölu einhversstaðar??

Þráðlaus myndarammi

Digital myndarammar hafa verið til um nokkurt skeið. Flestir hafa verið dýrir eða erfiðir í meðhöndlun, t.d. hefur þurft í þá minniskort eða eitthvað vesen. En nýji ramminn frá eSterling er sniðugur.

Þetta er þriðja kynslóðin af römmum frá eSterling og á meðal innihalds má nefna

WiFi Hægt að taka á móti myndum [...]

Blaðsíða 9 af 42« Fyrsta...7891011...203040...Síðasta »