Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Nýr spilari frá Acer

Acer hefur komið með slatta af nýjungum uppá síðkastið. Nýlega kom á markaðinn frá þeim spilarinn MP-340 og nú hefur sést til nýrrar græju frá þeim sem kallast MP-400. Tækið virðist nokkuð flott  og er á því 3,5″ skjár og það spilar MP3, WMA, DivX, og MPEG-2/4, á því er SD rauf og AV [...]

4 dyra Porsche

Wendelin Wiedeking tilkynnti á dögunum að þeir hjá Porsche væri byrjaðir að prófa nýjan 4 dyra coupe í þessari viku. Bíllinn hefur verið kallaður Panamera og er líklegur til að vera kynntur formlega til sögunnar á bílasýningunni í Genf árið 2009.

P2

Eitthvað verður fengið að láni úr hönnuninn á 911 bílunum en samt eru veigamiklar breytingar þar á. Vélin er frammí. Reiknað er með 3 tegundum af vélum í upphafi. 300 hestafla 6 strokka vél frá Volswagen (3,5 L) og svo 2 átta strokka vélar úr Cayenne bílnum, þ.e. 350 hestafla og svo turobo vélin sem er 560 hestöfl.

Stóra spurningin er sú hvort Porsche nái aftur að þagga niður í efasemdaröddum sem þegar hafa hljómað. Þeir náðu því með Cayenne jeppann, en tilhugsunin um 4 dyra fjölskyldubíl frá Stuttgart er ekki alveg búin að ná hljómgrunni hjá manni…

Lesa meira af 4 dyra Porsche

Nýjar vindmyllur staðsettar á úthafinu

Sjónmengun af vindmyllun kann að heyra sögunni til. Paul Sclavounos frá MIT skólanum hefur komið upp með lausn á vandamálinu. Vindmyllunum verður komið fyrir utan við sjóndeildarhring þannig að enginn sjái þær nema mávar og sjómenn. Vindmyllurnar verða einfaldlega festar með akkeri við sjávarbotn á allt að 650 metra dýpi. Þvermálið á vængjunum [...]

Blaðsíða 42 af 42« Fyrsta...102030...3839404142