Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Rafmagnsfjallahjól sem lofar góðu

Settið passar á flest fjallahjól

Þetta nýja hjól fær mann til að hlakka til sumarsins. Þýska fyrirtækið Ego-Kits hefur kynnt til sögunnar það sem þeir kalla E-Powered Downhill Bike kit svo maður þurfi nú ekki æfa sig of mikið og geti einbeitt sér meira að því að fara niður brekkur. Mótorinn er 1200 wött og passar á flest fjallahjól. [...]

Minniskubbur frá Svissneska hernum

Nokkur gígabæt og naglaklippur

Svissneski herinn hefur ekki unnið nein afrek svo lengi sem elstu menn muna. En fyrirtækið Victorinox hefur framleitt svokallaða svissneska herhnífa um áratugabil. Þeir eru duglegir að fylgjast með nýjungum og hafa haft USB minniskubba í hnífunum sínum um nokkurt skeið. Nú er að koma á markaðinn frá þeim SSD minniskubbur með allt að [...]

Klæðskerasniðinn dræver frá TaylorMade

3 stillimöguleikar á einni kylfu

Nýi dræverinn frá TaylorMade brýtur blað í golfsögunni. Kylfingurinn getur stillt kylfuna á þrjá vegu. Fyrst getur hann ráðið hversu flöturinn hallar mikið. Í öðru lagi  hvort hann sé innskeifur eða útskeifur. Í þriðja lagi er hægt að færa til þyngdarpunktinn í hausnum sem breytir því hvort boltinn fljúgi hátt eða lágt. Kylfan heitir R11.

Til að kóróna snilldina hafa þeir ákveðið að mála hausinn með mattri hvítri málningu svo sólin speglist ekki af honum. Einnig á að vera auðveldara að stilla kylfunni rétt upp þar sem hvíti liturinn er hvað ólíkastur grænu grasi.

Tengill á vef framleiðandann

3 stillimöguleikar á einni kylfu

Lesa meira af Klæðskerasniðinn dræver frá TaylorMade

Þráðlaus vog

iPhone appið

iPhone appið

Enn fjölgar í heimilistækjum sem tengjast netinu. Nú er það baðvogin.  Vogin er sem sagt WiFi tengd og með henni fylgir forrit sem þú setur í tölvuna þína og þú getur fylgst með þyngt, fituhlutfalli, vöðvahlutfalli og BMI. Einkaþjálfarinn getur líka fengið aðgangsorð svo hægt sé að fylgjast með. Allavega færð [...]

Grillaðu með símanum þínum

Nú verður enn meira gaman að elda

iPhone er að taka yfir heiminn smátt og smátt. Nú geturðu fylgst með hvernig steikinni líður í ofninnum með þessu gríðarlega efnilega tæki. iGrill er steikarhitamælir sem tengir þig við iPhone-inn þinn með Bluetooth tækni. Nú geturðu minglað við gestina og bíður bara eftir skilaboðum í símann.

Nú verður enn meira gaman að [...]

Töfrabjór

Það er stórt vandamál að þurfa að bíða eftir bjór þegar mann langar virkilega í hann. Einhver ónefndur snillingur hefur greinilega lent í þessu vandamáli og ákveðið að gera eitthvað í málunum. Lausnin var að fylla glasið neðanfrá og loka svo fyrir gatið með segulloka!

Þegar glasið er sett á græjuna ýtir hún segullokinu [...]

Blaðsíða 4 af 42« Fyrsta...23456...102030...Síðasta »