Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Flott tækni hjá Sony-Ericsson

Sony var að kynna nýja tækni til sögunnar í farsímalínunni sinni. Síminn heitir Z310 en er svo sem ekki merkilegur fyrir utan númerabirtinn áður en síminn er opnaður. Símanúmerin birtast á símanum sjálfum og er enginn sérstakur skjár fyrir símanúmerabirtinn. Auk þess breytir síminn litum. Þú velur lit fyrir þá sem er í símanúmerabókinni [...]

300GB fartölvudiskur

Þeir stækka með hverjum deginum. Í dag kynnti Fujitsu 300GB harðan disk fyrir fartölvur þ.e. 2,5tommu disk. Þetta gerist aðeins 9 mánuðum eftir að þeir náðu 200GB markinu. Diskurinn ber nafnið MHX2300BT og snýstu 4200 snúninga á mínútu og hefur svörun uppá 1,5ms. Orkunotkun er 1,6w.

Þráðlaus heyrnatól sem duga 10 sinnum lengur

Kleer er ungt fyrirtæki sem hefur fengið einkarétt á nýrri tækni sem virðist vera mun hentugri í þráðlausa sendingu á hljóði heldur en Bluetooth. Aðalmunurinn felst í því að rafmagnsnotkun er aðeins 10% af því sem bluetooth tækin nota, þannig að batteríin ættu að duga 10 sinnum lengur. Hljómgæðin eiga að vera þau sömu [...]

103 tommu plasma skjár fyrir jól

Nú er um að gera að tékka á hvort hægt sé að fá þennan á Visa-rað. Því nóg kostar hann. Panasonic TH-103pf9uk heitir hann og er eitthundrað og þriggja tommu plasma skjár. Verð: 4,9 milljónir króna. Aðeins. (þetta er verðið í USA)

Nokkrar tölur: 2,2 metrar á lengd 1,2 metrar á hæð 2,8 [...]

Öflugur router

Kanadíska fyrirtækið AlphaShield hefur kynnt til sögunnar nokkuð öflugan router. Hann er sagður ná yfir 350 metra innandyra og yfir 1150 metra utandyra. Þetta á að sjálfsögðu við bestu aðstæður. Þeir kalla tæknina Power-G en þetta mun vera um 20 sinnum meiri vegalengd en venjulegur router nær. Hraðinn á græjunni er 108mps og það [...]

GPS tæki á PSP

Sony í Japan hefur hafið sölu á viðbót við hina geysivinsæla lófa-leikjatölvu PSP. Það er GPS móttakari sem er aðeins um 4,5 cm á stærð og aðeins 16 grömm á þyngd.

Tækið er að sjálfsögðu hágæðaútgáfa af hinum þekktu GPS tækjum eins og við þekkjum þau. Til viðbótar eru komin fyrir Japansmarkað:

Golf-jou: Kort [...]

Blaðsíða 36 af 42« Fyrsta...102030...3435363738...Síðasta »