Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Marglitir geisladiskar :)

Loksins Loksins. Nú þegar geisladiskurinn er við það deyja út þá kemur Verbatim með það sem allir hafa beðið eftir. Litaðir geisladiskar. Við erum að tala um rauða, gula, græna, bláa og appelsínugula geisladiska. Tvímælalaust jólagjöfin í ár

Sony veðjar á þunna síma

Hér eru myndir af nýjum Sony-Ericsson síma sem lekið hafa út á netið. Þessi gengur undir nafninu Ai og er með öllu þessu nýjasta (walkman, myndavél osfrv) auk þess að vera úr áli.

Flottur, ekki satt?

ai1

Smellið á “Lesa meira” til að sjá fleiri myndir

Lesa meira af Sony veðjar á þunna síma

Allt er stærra í Texas

Ameríska fótboltaliðið Dallas Cowboys eru að byggja sér nýjan leikvang sem er verkfræðisnilld frá upphafi til enda. Leikvangurinn verður stærsti yfirbyggði leikvangur í heimi og verður auk þess stærsta súlulausa herbergi í heiminum. Svo verður skjár sem hangir yfir miðju grasinu stærsti sjónvarpsskjár í heimi. Reyndar verða það 4 skjáir sem vísa hver í [...]

KTM smíðar bíl í samstarfi við Audi

Austurríski sport-mótorhjólaframleiðandinn KTM hefur sýnt teikningar af X-Bow bílnum sínum. Bíllinn er hannaður og smíðaður í samstarfi við Audi. Grindin er smíðuð af KTM en vélin ofl. er úr Audi. Vélin er 220 hestöfl.

Viðræður eru við Magna Steyr verksmiðjuna um fjöldaframleiðslu en í upphafi verða bara 100 eintök smíðuð. Bíllinn verður kynntur opinberlega á Bílasýningunni í Genf í mars. X-Bow(crossbow) er aðeins vinnuheiti á bílnum og óvíst hvað nafnið verður.

Hljámarnir sem sjást á myndinni fylgja með bílnum en þeir eru meira fyrir lúkkið og til að verjast flugum en öryggishjálmar

ktm

Nýjar fréttir 2.feb 07: KTM hefur slitið samstarfinu við Audi og ætlar að byggja bílinn á eigin spýtur. Þeir gátu ekki sætt sig við kröfur Audi um loftpúða og eitthvað fleira en KTM vildi halda léttleikanum í fyrirrúmi. Bíllinn verður samt sem áður með vél og gírkassa frá Audi.

Fleiri myndir hér fyrir neðan

Lesa meira af KTM smíðar bíl í samstarfi við Audi

Tveggja kúplinga gírkassi frá Volvo á næsta ári

Volvo hefur verið að hann tveggja kúplinga gírkassa um hríð og var spáð að hann næði í framleiðslu eftir 2010. Eitthvað hafa Svíarnir unnið frameftir því nú hefur þessu verið flýtt og segir Volvo að kassinn verði komin í S40 og V50 dísel bílana í lok næsta árs.

Biðin eftir þessum gírkassa verður að [...]

Flybook brúar bilið

Geturðu ekki ákveðið þig hvort þú ætlar að fá þér lappa eða borðtölvu. Flybook ætlar að selja þessa nýju vél í vetur en eins og sjá má á myndinni er skjárinn nokkuð þægilegur til notkunar. Tölvan sjálf er með Intel Core Duo 1,66GHz, 1gb í RAM, 12,1″skjá og allt að 80GB disk ásamt öllu [...]

Blaðsíða 35 af 42« Fyrsta...102030...3334353637...40...Síðasta »